Fara í efni

Námskeið fyrir öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði

Námskeið fyrir öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði verður næst haldið miðvikudaginn 4. mars í húsnæði Rafmenntar í Reykjavík.

Á námskeiðinu verður farið yfir helstu málaflokka vinnuverndarstarfs á vinnustöðum s.s. inniloft, líkamsbeitingu, hávaða, lýsingu, efnahættur, félagslega og andlega áhættuþætti, einelti og áreitni, vinnuslys og öryggi við vélar. Einnig verður fjallað ítarlega um gerð áhættumats á vinnustöðum. 

Námskeiðið er fyrir alla vinnustaði sem hafa öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði og þá sem hafa áhuga á vinnuverndarmálum og vilja bæta hjá sér vinnuumhverfið

Námsfyrirkomulagið er þannig að udirbúningur fer fram heima eða á vinnustað, auk sex klukkustunda vinnu í kennslustofu.

Nánari upplýsingar og skráning