Fara í efni

Leiðsögunám í ævintýraferðamennsku

Thompson Rivers University í Kanada býður upp á spennandi leiðsögunám í ævintýraferðamennsku á Íslandi (Adventure Sport Certificate) í samstarfi við Íþróttaakademíu Keilis.

Um er að ræða 60 ECTS, átta mánaða nám á háskólastigi, sem hentar vel þeim sem hafa mikinn áhuga á ferðamennsku og útivist við krefjandi aðstæður. Útskrifaðir nemendur hafa möguleika á að vinna á óhefðbundnum og fjölbreyttum starfsvettvangi með góðum starfsmöguleikum víða um heim í ört vaxandi grein ævintýraferðamennsku. 

Námið er grunnur að helstu þáttum ævintýraferðamennsku. Það hentar þeim sem vilja:

  • Kynnast starfi ævintýraleiðsögumannsins
  • Bæta við þekkingu sína á ævintýraferðamennsku
  • Skoða möguleikann á að gera ævintýraleiðsögn að starfsframa
  • Fara í hlutfallslega stutt og hnitmiðað nám
  • Hafa möguleika á að fara í nám sem gefur möguleika að fá metið í framhaldsnám

Námið hefst næst í ágúst 2021.

Nánari upplýsingar