09.03.2020
Vinnuverndarskóli Íslands og Keilir í samstarfi við hina ýmsu aðila býður upp á fyrirlestraröð um hina ýmsu þætti sem koma að öryggi og heilsu á vinnustöðum.
Fyrirlestrarnir fara fram hálfsmánaðarlega í hádeginu á mánudögumí í aðalbyggingu Keilis á Ásbrú í Reykjanesbæ. Þeir eru öllum opnir. Boðið verður upp á súpu og brauð.
Fyrsti fyrirlesturinn í röðinni verður haldinn í hádeginu í dag, mánudaginn 9. mars, þar verður farið yfir helstu þætti sem þurfa að vera í lagi á öllum vinnustöðum m.a.:
- Hver ber ábyrgð á vinnuverndarstarfi og öryggismálum vinnustaða
- Skipan og hlutverk öryggisnefnda, öryggistrúnaðarmanna og öryggisvarða
- Skipulag og kröfur varðandi áhættumat starfa
- Skráningu og tilkynningu vinnuslysa
- Stefnu og viðbragðsáætlun vegna eineltis og áreitni
- Hvað 1., 2. og 3. stigs forvarnir eru
- Hver ávinningur vandaðs vinnuverndarstarfs er