27.05.2015
Útskrift nemenda í ÍAK einka- og styrktarþjálfun og leiðsögunámi í ævintýraferðamennsku fer fram í Andrews Theater á Ásbrú föstudaginn 5. júní næstkomandi.
Útskriftarnemendur mæta kl. 14:00, vegna myndatöku og æfingar. Nemendur eru beðnir um að senda póst á utskrift@keilir.net til að skrá sig í útskrift. Vinsamlegast takið fram fjölda gesta.