04.01.2021
Íþróttaakademía Keilis býður upp á ný undirbúningsnámskeið fyrir þá sem stefna á ÍAK einkaþjálfaranám.
Um er að ræða úrræði fyrir þá sem vantar allt að 30 framhaldsskólaeiningar til að hefja nám í ÍAK einkaþjálfun.
Þannig er hægt að sækja undirbúningsáfanga í fjarnámi í vor og hefja nám í einkaþjálfun haustið 2021.
Umsóknarfrestur í undirbúningsnámið er til og með 5. janúar 2021.