Fara í efni

Tilboðsverð á námskeiði Keilis í tilefni alþjóðlega svefndagsins

Íþróttaakademía Keilis og Nordic Fitness Education bjóða upp á netnámskeið um svefn og áhrif svefnraskana á líkamsrækt - Sleep Recovery Specialist. Námskeiðið er á ensku og fer alfarið fram á netinu, og fellur það inn undir röð námskeiða sem Keilir hefur sett saman fyrir erlendan markað undir heitinu Nordic Fitness Education, sem býður meðal annars upp á einkaþjálfaranám í fjarnámi - Nordic Personal Trainer Certificate (NPTC). 

Í tilefni alþjóðlega svefndagsins í föstudaginn 19. mars bjóða Keilir og Nordic Fitness Education afslátt af námskeiðinu "Sleep Recovery Specialist" um svefn og áhrif svefnraskana á líkamsrækt. Notið kóðann SLEEP100 til að fá 100 Evru afslátt á námskeiðið. Tilboðið gildir til 26. mars næstkomandi.

Um námskeiðið

Markmiðið með svefn námskeiðinu er að einkaþjálfarar og þjálfarar almennt fræðist um og kunni að leggja mat á svefnvenjur fólks ásamt úrræðum til að bæta svefn og svefntengt atferli. Meðal þeirra sérfræðinga sem talað er við eru Dr. Russel Foster, prófessor í taugavísindumvið háskólann í Oxford, Nick Littlehales, sérhæfður þjálfari í svefnvenjum fyrir leiðandi fótboltalið í ensku úrvalsdeilldinni og Dr. Erna Arnardóttir, lífeðlis- og svefnfræðingur á Landspítala háskólasjúkrahúsi og sérfræðingi hjá Nox Medical í Reykjavík. 

Þetta er fyrsta námskeiðið í Evrópu sem leggur áherslu á svefn og bata, og er sérstaklega hannað til að votta fagfólk í líkamsrækt í viðfangsefninu. Önnur námskeið sem fjalla um svefnvenjur og svenröskun eru flest á háskólastigi og ekki hönnuð fyrir eða beint að líkamsræktarfólki. 

Svefnskortur kostar samfélagið

Á eftir vinnutíma er svefn það venjuleg manneskja eyðir hvað mestum tíma í á hverjum degi. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin mælir með því að fólk miði við að sofa um átta tíma á hverri nóttu. Síðustu 70 árin hefur hinsvegar sá tími sem fólk notar í svefn minnkað um meira en klukkustund, úr 7,9 tímum að meðaltali í 6,8 klukkustundir á sólarhring. Það er áætlað að tveir af hverjum þremur fullorðnum einstaklingum fái ekki nægan svefn, þar sem helstu áhrifavaldar eru stress og áhyggjur. Fjárhagslegt tap í Evrópu vegna þessa hleypur á hundruðum milljarða Evra árlega. Það er því um gríðarlegt heilsufarslegt og fjárhagslegt mál að ræða.

Krónískur skortur á svefni eykur líkur á offitu, sykursýki, hjartavandamálum og þunglyndi. Þegar maður hefur ekki sofið nóg er erfiðara fyrir líkamann að verjast veikindum, hvort sem það er kvef eða krabbamein. Skortur á svefni gerir einnig líkamann veikari fyrir krabbameini og hefur verið tengdur við ýmsar gerðir þess. Þá bælir óreglulegur svefn framleiðslu hormónsins melatóníns, sem getur líka aukið hættu á krabbameini, auk þess sem svefnskortur dregur úr líkamlegri getu fólks og hversu fljótt líkaminn jafnar sig eftir líkamsrækt og þjálfun.

Námskeiðið vottað og viðurkennt af Europe Active

Evrópska stofnunin Europe Active hefur gert gæðaúttekt á námskeiðinu og viðkurkenndi það í kjölfarið sem hluta af endurmenntunarnámskeiðum EREPS - Europe Register of Exercise Professionals. Europe Active hafa umsjón með gæða- og vottunarmálum einkaþjálfara og líkamsræktarstöðva í Evrópu og hefur stofnunin áður samþykkt bæði ÍAK einkaþjálfaranám og NPTC nám Keilis. Samtökin hafa þannig veitt gæðastimpil á öllu einkaþjálfaranámi Keilis.

Nánari upplýsingar og skráning á námskeiðið má nálgast á heimasíðunni www.nordicfitnesseducation.com