Fara í efni

Opið fyrir umsóknir í NPTC einkaþjálfaranám í fullu fjarnámi

Við höfum opnað fyrir umsóknir í NPTC einkaþjálfaranám á vegum Keilis. Hægt er að byrja í náminu sex sinnum á ári og tekur allt að átta mánuði. Námið hefst næst 22. febrúar 2021. 
 
Hver áfangi tekur sjö vikur og hefur nemandinn aðgang að öllum kennslumyndböndum á meðan áfanginn er opinn. Nemandinn getur þannig stjórnað hraða námsins sjálfur. Fyrirkomulagið hentar vel í verklegri kennslu þar sem nemandinn hefur tækifæri til að fara mun dýpra í námsefni áfanganna í samanburði við staðnám, þar sem tíminn takmarkast við staðlotur.
 
Gæðavottað af Europe Active
 
Europe Active stofnunin, sem hefur umsjón með gæða- og vottunarmálum einkaþjálfara og líkamsræktarstöðva í Evrópu, hefur gæðavottað nýtt einkaþjálfaranám Keilis undir heitinu Nordic Fitness Education (NFE). Í tilkynningu þeirra kemur fram að um sé að ræða fyrsta einkaþjálfaranámið á alþjóðavísu sem samtökin viðurkenna sem er í 100% fjarnámi. Með gæðavottuninni verða útskrifaðir einkaþjálfarar úr bæði ÍAK einkaþjálfaranámi Keilis og Nordic Personal Trainer Certificate (NPTC) einkaþjálfaranámi NFE náminu framvegis skráðir í EREPS (European Register of Exercise Professionals) gagnagrunn Europe Active og öðlast þar með evrópska vottun á færni sinni. 
 
Landsliðskona í knattspyrnu fyrst til að útskrifast
 
Dagný Brynjarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, var fyrsti nemandinn til að útskrifast úr NPTC náminu fyrr á þessu ári. „Ég var að leita að einkaþjálfaranámi sem ég gat tekið í fjarnámi á meðan ég var í atvinnumennsku erlendis“ segir Dagný, en hún hafði áður lokið háskólanámi í Bandaríkjunum. Hún stefnir á að nýta reynsluna og námið til að geta boðið upp á fjarþjálfun samhliða atvinnumennsku í fótbolta. „Eftir að ég lauk NPTC náminu fór ég í áframhaldandi nám hjá Keili í ÍAK styrktarþjálfun sem ég lýk núna í vor. Ég mun nýta reynsluna af báðum þessum námsleiðum þegar ferlinum lýkur. NPTC námið hentar vel þeim sem hafa áhuga og þekkingu á líkamsrækt og þjálfun, sérstaklega þar sem um er að ræða fjarnám.“
 
NPTC námið hentar þannig bæði á erlendum markaði sem og þeim sem vilja stunda einkaþjálfaranám samhliða vinnu. Nánari upplýsingar um námið má finna á heimasíðu Keilis.