Fara í efni

Nám í fótaaðgerðafræði hefst næst í ágúst

Keilir býður upp á nám í fótaaðgerðarfræði og hefst námið næst í lok ágúst 2019. Námið er hið eina sinnar tegundar á Íslandi. 

Námið er hið eina sinnar tegundar á Íslandi. Kennt er í fjarnámi með reglulegum verklegum staðlotum á Ásbrú í Reykjanesbæ, þannig að námið hentar fólki til dæmis með vinnu eða af landsbyggðinni. 

Fótaaðgerðafræðingar meta ástand fóta, greina fótamein og meðhöndla þau fótamein, sem ekki krefjast sérstakrar læknisfræðilegrar meðferðar. Þeir ráðleggja um heilbrigði fóta, meðferð og forvarnir fótameina og þau úrræði sem finnast í heilbrigðiskerfinu þar að lútandi. Skipuleggja, framkvæma og meta eigin vinnu í samræmi við viðurkennda gæðastaðla og halda sjúkraskrár samkvæmt lögum þar um. 

Gert er ráð fyrir að nám í almennum kjarna og heilbrigðisgreinum taki 3 - 4 annir og að nemendur hafi alla jafna lokið því námi áður en þeir hefja nám í sérgreinum fótaaðgerðafræðinnar. Sérnámið er skipulagt sem þriggja anna nám og eru áfangarnir kenndir á þremur samliggjandi önnum. Bóklegir áfangar eru kenndir í fjarnámi með reglulegum staðlotum og verklegir áfangar eru kenndir í aðalbyggingu Keilis á Ásbrú í Reykjanesbæ.

Nánari upplýsingar um námið má nálgast hér