Fara í efni

Mikil ásókn í Fótaaðgerðafræði

Opið er fyrir umsóknir í nám í Fótaaðgerðafræði og hefur mikill fjöldi umsókna þegar borist. Námið er hið eina sinna tegundar á Íslandi. Bóklegur hluti námsins fer fram í fjarnámi en staðlotur eru haldnar í aðalbyggingu Keilis í Reykjanesbæ. 

Keilir bauð í fyrsta sinn upp á námið vorið 2017 en þá hófu tíu nemendur nám í faginu, hefur þeim farið ört fjölgandi allar göngur síðan. Námið mótar mikla atvinnumöguleika um allt land og hafa útskrifaðir nemendur bæði hafið störf á nústarfandi stofum og stofnað sínar eigin. 

Við hvetjum áhugasama um að sækja um sem fyrst. 

Hvað gera fótaaðgerðafræðingar?

Fótaaðgerðafræði er löggilt starfsgrein og teljast fótaaðgerðafræðingar til heilbrigðisstétta. Fótaaðgerðafræðingar meta ástand fóta, greina fótamein og meðhöndla þau fótamein, sem ekki krefjast sérstakrar læknisfræðilegrar meðferðar. Þeir ráðleggja um heilbrigði fóta, meðferð og forvarnir fótameina og þau úrræði sem finnast í heilbrigðiskerfinu þar að lútandi. Skipuleggja, framkvæma og meta eigin vinnu í samræmi við viðurkennda gæðastaðla og halda sjúkraskrár samkvæmt lögum þar um. 

Hvernig fer námið fram?

Nám í almennum kjarna og heilbrigðisgreinum taka 3 - 4 annir og er gert ráð fyrir því að nemendur hafi alla jafna lokið því námi áður en þeir hefja nám í sérgreinum fótaaðgerðafræðinnar. Sérnámið er skipulagt sem þriggja anna nám og eru áfangarnir kenndir á þremur samliggjandi önnum. Bóklegir áfangar eru kenndir í fjarnámi með reglulegum staðlotum og verklegir áfangar eru kenndir í aðalbyggingu Keilis á Ásbrú í Reykjanesbæ.

 

Nánari upplýsingar um námið