Fara í efni

Lauk einkaþjálfaranámi 62 ára gamall

Frá útskrift ÍAK einkaþjálfara á Akureyri 2015. Árni er annar frá hægri.
Frá útskrift ÍAK einkaþjálfara á Akureyri 2015. Árni er annar frá hægri.

Árni Stefánsson, íþróttakennari á Sauðárkróki, dúxaði 62 ára gamall í ÍAK einkaþjálfaranámi Keilis. Hann var í skemmtilegu viðtali í Fréttablaðinu 16. maí síðastliðinn.

Lauk einkaþjálfaranámi 62 ára gamall

Íþróttakennarinn Árni Stefánsson lauk ÍAK einkaþjálfaranámi hjá Keili fyrir tveimur árum, þá 62 ára að aldri. Hann segist ekki vita til þess að nokkur hafi lokið því eldri að árum. Hann kennir við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og segir ekki ólíklegt að hann snúi sér að einkaþjálfun þegar kennaraferlinum lýkur.

Árni hefur alltaf verið drifinn áfram af mikilli hreyfiþörf. Hann er fyrrverandi markvörður Fram og íslenska landsliðsins í knattspyrnu og stundaði langhlaup lengi vel. Hann lauk íþróttakennaranámi frá ÍKÍ árið 1976 og hóf kennslu við grunnskólann á Sauðárkróki 1982. Frá árinu 1995 hefur hann svo kennt við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Bæði almennar íþróttir og ýmsar greinar á íþróttabraut eins og þjálfunarfræði, íþróttasálfræði og fleira. Upp úr sextugu sótti Árni um námsleyfi og ákvað að nýta það til að fara í árslangt einkaþjálfaranám hjá Keili. „Ég sá fram á að það myndi gagnast mér sem alhliða endurmenntun í þessum fræðum en fannst líka gaman að prófa eitthvað aðeins öðruvísi, þó þetta sé vissulega skylt því sem ég hef verið að gera.“

Árni tilheyrði hópi sem stundaði námið á Akureyri. Hann lætur vel af því og segir það afar fjölþætt. Svo fór að hann lauk námi með hæstu heildareinkunn í sínum hópi. „Það má nú aðallega að þakka því góða fólki sem ég var með í hóp. Ég held að það hafi hjálpað mér meira en ég þeim.“ 

Að námi loknu sneri Árni sér aftur að kennslu en til stendur að bjóða upp á nám við íþróttaakademíu við Fjölbrautaskólann næsta haust. Hún verður byggð upp í samstarfi við íþróttafélagið Tindastól og beinist að miklu leyti að nemendum sem leggja stund á fótbolta og körfubolta sem eru þær íþróttagreinar sem flestir iðka í Skagafirði. Árni býst við að verða viðloðandi þá kennslu einhver misseri til en segir þó styttast í annan endann á kennaraferlinum. „Þá fer maður kannski að praktísera einkaþjálfunina af einhverju viti,“ segir hann og hlær, en Árni er nú þegar með nokkra hópatíma í íþróttamiðstöðinni Þreksporti á Sauðárkróki. Hann segir gott að hafa að einhverju að hverfa enda ætti illa við hann að setjast í helgan stein. 

Árni er líka í forsvari fyrir Skokkhóp Sauðárkróks sem hann stofnaði, ásamt fleirum, fyrir tuttugu árum. „Ég hljóp nokkur maraþon hér á árum áður en er nú hættur langhlaupum,“ segir Árni sem þurfti að fara í hnjáskipti fyrir þremur árum. „Þetta tekur allt sinn toll en það er ótrúlegt að geta með hjálp tækninnar staðið upp- réttur og haldið áfram. Þó lang- hlaup henti mér síður í dag kemur styrktarþjálfunin í staðinn,“ segir Árni sem getur ekki hugsað sér að hætta að hreyfa sig og fer reglulega í ræktina. Aðspurður segir hann fólk á landsbyggðinni ekki síður duglegt að hreyfa sig en Reykvíkinga. „Þó framboð námskeiða sé eflaust eitthvað minna finnur fólk sér bara næsta fjall til að klífa.“ 

Árni segir skokkhópinn verða starfræktan í sumar líkt og áður. „Hann hefur aðeins elst og væri gaman að fá nýliðun. Ég skora því á fólk að mæta.“ 

Greinin birtist í Fréttablaðinu 16. maí 2017