Fara í efni

Landsliðskona fyrst til að útskrifast úr alþjóðlegu einkaþjálfaranámi Keilis

Dagný Brynjarsdóttir, nemandi í NPTC og ÍAK styrktarþjálfaranámi Keilis
Dagný Brynjarsdóttir, nemandi í NPTC og ÍAK styrktarþjálfaranámi Keilis
Dagný Brynjarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, er fyrsti nemandinn til að útskrifast sem NPTC (Nordic Personal Trainer Certificate) einkaþjálfari á vegum Íþróttaakademíu Keilis. Námið er á ensku og fer að öllu leyti fram í fjarnámi. Það hentar þannig bæði á erlendum markaði sem og þeim sem vilja stunda einkaþjálfaranám samhliða vinnu.
 
„Ég var að leita að einkaþjálfaranámi sem ég gat tekið í fjarnámi á meðan ég var í atvinnumennsku erlendis“ segir Dagný, en hún hafði áður lokið háskólanámi í Bandaríkjunum. Hún stefnir á að nýta reynsluna og námið til að geta boðið upp á fjarþjálfun samhliða atvinnumennsku í fótbolta. „Eftir að ég lauk NPTC náminu fór ég í áframhaldandi nám hjá Keili í ÍAK styrktarþjálfun sem ég lýk núna í vor. Ég mun nýta reynsluna af báðum þessum námsleiðum þegar ferlinum lýkur“.
 
Dagný er ánægð með námið en hún segir að það hafi verið kostur að hafa reynslu úr íþróttum. „NPTC námið hentar vel þeim sem hafa áhuga og þekkingu á líkamsrækt og þjálfun, sérstaklega þar sem um er að ræða fjarnám.“
 
Hægt er að byrja í NPTC náminu sex sinnum á ári og tekur það 6-8 mánuði allt eftir hraða nemandans. Hver áfangi tekur sjö vikur og hefur nemandinn aðgang að öllum kennslumyndböndum á meðan áfanginn er opinn. Það hentar vel í verklegri kennslu þar sem nemandinn hefur tækifæri til að fara mun dýpra í námsefni áfanganna í samanburði við staðnám, þar sem tíminn takmarkast við staðlotur.
 
Nánari upplýsingar um NPTC námið má finna á heimasíðu Keilis.