Fara í efni

Kraftþjálfunarnámskeið með Dietmar Wolf

Íþróttaakademía Keilis býður upp á kraftþjálfunarnámskeið með Dietmar Wolf, landsliðsþjálfara norska landsliðsins í kraftlyftingum og kennara í styrktarþjálfaranámi ÍAK, dagana 4. - 5. nóvember næstkomandi.

Frábært tækifæri fyrir einka- og styrktarþjálfara sem vilja færa þekkingu sína á hærra plan. Hægt er að sækja námskeiðið annað hvort á stökum degi eða báða dagana. Athugið að einungis verður tekið við 20 þátttakendum hvorn dag fyrir sig. Námskeiðið er eingöngu ætlað ÍAK einkaþjálfurum, sjúkraþjálfurum eða íþróttafræðingum.

Nánari upplýsingar veitir Arnar Hafsteinsson, forstöðumaður ÍAK í síma 578 4052 eða 820 9090.

Verð: 9.500 kr. fyrir annan daginn eða 19.000 kr. fyrir báða.
Staðsetning: World Class Kringlunni (gengið inn að neðanverðu)
Tími: 4. - 5. nóvember kl. 13:00 - 17:00 báða dagana

Skráning á námskeiðið