Fara í efni

Keilir býður upp á nýtt nám í fótaaðgerðarfræði

Keilir býður upp á nám í fótaaðgerðarfræði frá vorönn 2017 með fyrirvara um næga þátttöku. Áætlað er að námið hefjist um miðjan febrúar og er umsóknarfrestur til 23. janúar. Námið er hið eina sinnar tegundar á Íslandi.

Fótaaðgerðafræðingar meta ástand fóta, greina fótamein og meðhöndla þau fótamein, sem ekki krefjast sérstakrar læknisfræðilegrar meðferðar. Þeir ráðleggja um heilbrigði fóta, meðferð og forvarnir fótameina og þau úrræði sem finnast í heilbrigðiskerfinu þar að lútandi. Skipuleggja, framkvæma og meta eigin vinnu í samræmi við viðurkennda gæðastaðla og halda sjúkraskrár samkvæmt lögum þar um. 

Gert er ráð fyrir að nám í almennum kjarna og heilbrigðisgreinum taki 3 - 4 annir og að nemendur hafi alla jafna lokið því námi áður en þeir hefja nám í sérgreinum fótaaðgerðafræðinnar. Sérnámið er skipulagt sem þriggja anna nám og eru áfangarnir kenndir á þremur samliggjandi önnum. Bóklegir áfangar eru kenndir í fjarnámi með reglulegum staðlotum og verklegir áfangar eru kenndir í aðalbyggingu Keilis á Ásbrú í Reykjanesbæ.

Nánari upplýsingar um námið má nálgast hér