02.01.2018
Arnar Hafsteinsson, Julian Berriman (Director of Professional Standards Committee hjá EuropeActive) og Haddý Anna Hafsteinsdóttir (verkefnastjóri ÍAK þjálfaranámsins).
ÍAK einkaþjálfaranám Keilis hlaut á dögunum alþjóðlega viðurkenningu og vottun á náminu á vegum Europe Active samtakanna en þau hafa umsjón með gæða- og vottunarmál einkaþjálfara og líkamsræktarstöðva í Evrópu. Vottunin er gæðastimpill á því einkaþjálfaranámi sem Keilir hefur boðið upp á undanfarin ár og mun auka sýnileika útskrifaðra nemenda á alþjóðavísu.
Með vottuninni verða útskrifaðir einkaþjálfarar framvegis skráðir í EREPS gagnagrunn þeirra og öðlast þar með evrópska vottun á færni sinni.
Vottunin gildir ekki fyrir fyrrverandi nemendur námsins, en skólinn hefur ákveðið að bjóða upp á Masterclass námskeið fyrir útskrifaða ÍAK einkaþjálfara þar sem þeir munu geta öðlast þessa vottun í framhaldinu.
Arnar Hafsteinsson, forstöðumaður Íþróttaakademíu Keilis, tók við viðurkenningarskjalinu á Europe Active International Standard Meeting í Róm í síðasta mánuði.