Fara í efni

ÍAK einkaþjálfaranemar veita næringarráðgjöf

Nemendur í ÍAK einkaþjálfaranámi Keilis veita ókeypis næringarráðgjöf í Keili laugardagana 10. og 17. mars klukkan 13.00.

Nemendur í ÍAK einkaþjálfaranámi Keilis veita ókeypis næringarráðgjöf í Keili laugardagana 10. og 17. mars klukkan 13.00.

 

Næringarráðgjöfin er hluti af verkefni þeirra við næringarfræði. Fólki á öllum aldri og af öllum toga er boðið að koma en einungis verður hægt að taka á móti 15 manns hvorn daginn. Frábært tækifæri til að fá góð ráð um hollt mataræði frá fagfólki.

Skráning er hjá Steinþóru Eir Hjaltadóttur á steinthora@keilir.net.