Fara í efni

Fyrirlestur um þjálfunarálag í styrktarþjálfun íþróttafólks

Dietmar Wolf
Dietmar Wolf

Íþróttaakademía Keilis býður upp á fyrirlestur með Dietmar Wolf um þjálfunarálag í styrktarþjálfun íþróttafólks (training intensity), 16. nóvember næstkomandi.

Allir sem koma að styrktarþjálfun íþróttafólks þurfa að taka tillit til íþróttarinnar sem íþróttamaðurinn stundar og gæta að jafnvægi sé í þjálfunarálagi. Allt of algengt er að íþróttafólk falli í gryfju ofálags eða ofþjálfunar ef ekki er gætt að þessum þáttum. 

Um þetta fjallar gestafyrirlesarinn Dietmar Wolf sem hefur um árabil gegnt stöðu aðalráðgjafa norska kraftlyftingasambandsins og undir þeim titli starfað sem yfirþjálfari norska landsliðsins í kraftlyftingum, haft yfirumsjón með rannsóknum í styrktarþjálfun og verið yfirmaður fræðslumála og þróun æfingarkerfa innan sambandsins. Árangur Dietmar með norska landsliðið hefur verið mjög góður en hann hefur þokað þeim jafnt og þétt upp styrkleikalistann og skipa Norðmenn nú sæti með fimm sterkustu þjóðum í kraftlyftingaríþróttinni. Árið 2010 var Dietmar heiðraður af evrópska Kraftlyftingasambandinu með því að setja hann á "Hall of Fame" lista sambandsins.

Fyrirlesturinn fer fram kl. 16 - 18 laugardaginn 16. nóvember í aðalbyggingu Keilis á Ásbrú. Þátttökugjald er 3.000 krónur, en ókeypis er fyrir ÍAK einkaþjálfara.

Skráning á: arnarhaf@keilir.net