Skuggakosningar í MÁ
- 8 pcs.
- 09.09.2021
Góð stemning var í kringum Skuggakosningar sem fóru fram í Menntaskólanum á Ásbrú fimmtudaginn 9. september, en þær fara nú fram í öllum framhaldsskólum landsins í aðdraganda alþingiskosninga.
View imagesGóð stemning var í kringum Skuggakosningar sem fóru fram í Menntaskólanum á Ásbrú fimmtudaginn 9. september, en þær fara nú fram í öllum framhaldsskólum landsins í aðdraganda alþingiskosninga.
View imagesSex kennsluvélar Flugakademíu Íslands flugu á dögunum oddaflug yfir gosstöðvarnar í Geldingadölum, en flugið var framkvæmt að beiðni Diamond flugvélaframleiðandans, sem hafa mikinn áhuga á því að nýta myndefnið í markaðs- og kynningarstarfi.
View imagesKeilir - Miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs útskrifaði 171 nemendur við hátíðlega athöfn í Hljómahöll í Reykjanesbæ föstudaginn 11. júní. Við athöfnina voru útskrifaðir 87 nemendur af Háskólabrú, 26 ÍAK einkaþjálfarar, 26 ÍAK styrktarþjálfarar og 32 atvinnuflugmenn. Útskriftin markaði þau tímamót að fjögurþúsundasti nemandinn útskrifaðist frá Keili og hafa nú samtals 4.166 einstaklingar útskrifast úr námi við skóla miðstöðvarinnar. Heiðurinn féll Daða Þór Ásgrímssyni, nemanda Háskólabrúar í skaut og fékk hann blómvönd frá Keili við þetta tækifæri.
View imagesSamtals brautskráðust 42 nemendur frá Keili við hátíðlega athöfn föstudaginn 14. ágúst síðastliðinn. Jóhann Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri Keilis, flutti ávarp og stýrði athöfninni, en vegna aðgangstakmarkanna var athöfnin send út í beinu streymi.
View imagesKeilir útskrifaði samtals 209 nemendur við hátíðlega athöfn í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ, föstudaginn 12. júní 2020 og er þetta lang stærsta brautskráning nemenda skólans frá upphafi. Samtals hafa nú 3.858 nemendur lokið námi við deildir skólans sem var stofnaður á Ásbrú í Reykjanesbæ í maí 2007. Við athöfnina voru brautskráðir 109 nemendur af Háskólabrú, 78 atvinnuflugnemar og 22 ÍAK styrktarþjáflarar. Sökum raskanna á skólahaldi í vor frestast brautskráning nemenda úr ÍAK einkaþjálfaranámi, en útskrift þeirra fer fram með nemendum úr Verk- og raunvísindadeildar Háskólabrúar Keilis í ágúst. Jóhann Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri Keilis, flutti ávarp og stýrði athöfninni, auk þess sem Þorgrímur Þráinsson flutti hátíðarræðu. Vegna aðgangstakmarkanna var athöfnin send út í beinu streymi á samfélagsmiðlum Keilis.
View imagesKeilir brautskráði 89 nemendur við hátíðlega athöfn í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ, föstudaginn 17. janúar 2020. Við athöfnina voru brautskráðir 57 nemendur af Háskólabrú, 25 atvinnuflugmenn og sjö nemendur úr fótaaðgerðafræði. Var þetta í fyrsta sinn sem útskrift Keilis fer fram í Hljómahöllinni, en fjölmennar útskriftir skólans voru búnar að sprengja utan af sér Andrews Theater á Ásbrú þar sem þær höfðu farið fram undanfarin ár.
View imagesÍ lok júní 2019 stóð Keilir fyrir vel heppnuðu sumarnámskeiði fyrir ungt fólk um útivist og ævintýraferðamennsku. Við þökkum þessum skemmtilegu krökkum fyrir frábæra daga.
View imagesÁ annað hundrað stelpur úr fjórum grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu tóku þátt í vinnustofu um tölvuleikjagerð sem Menntaskólinn á Ásbrú stóð fyrir á viðburðinum Stelpur og tækni sem var haldinn í sjötta sinn í Háskólanum í Reykjavík þann 22. maí síðastliðinn.
View imagesKeilir brautskráði 175 nemendur við hátíðlega athöfn á Ásbrú föstudaginn 8. júní síðastliðinn. Við athöfnina brautskráðust nemendur úr þremur skólum Keilis: Háskólabrú, Íþróttaakademíu og Flugakademíu. Þetta er fjölmennasta útskrift í sögu Keilis og hafa nú samtals 3.208 nemendur lokið námi við skólann frá upphafi.
View imagesKeilir útskrifaði 115 nemendur við hátíðlega athöfn á Ásbrú föstudaginn 9. júní. Við athöfnina brautskráðust nemendur úr Háskólabrú, Íþróttaakademíu og Flugakademíu, auk nemenda í leiðsögunámi í ævintýraferðamennsku á vegum Thompson Rivers University og Keilis. Með útskriftinni hafa nærri 250 nemendur lokið námi frá skólum Keilis á árinu og samtals 2.914 nemendur úr öllum deildum Keilis frá stofnun skólans árið 2007.
View imagesKeilir útskrifaði 90 nemendur úr fjórum deildum þann 16. janúar og hafa þá í allt 1.982 nemendur útskrifast frá skólanum síðan hann hóf starfsemi árið 2007.
View imagesKeilir - Miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs útskrifaði 150 nemendur við hátíðlega athöfn í Andrews Theater á Ásbrú föstudaginn 20. júní.
View imagesÞað var bjart yfir nemendum og starfsfólki Keilis í hádeginu 7. maí síðastliðinn. Þá voru grillaðar pylsur í tilefni af sjö ára afmæli skólans.
View imagesKeilir útskrifaði 102 nemendur af fimm brautum 24. janúar síðastliðinn og hafa þá í allt 1.709 nemendur útskrifast frá skólanum síðan hann hóf störf árið 2007. Útskrifaðir voru nemendur af Háskólabrú, einkaþjálfaranámi, flugumferðarstjórn, flugþjónustu og atvinnuflugmannsnámi.
View imagesKeilir brautskráði nemendur af Háskólabrú og Flugakademíu föstudaginn 25. janúar 2013. Alls brautskráðust 109 nemendur, þar af 86 nemendur úr fjarnámi Háskólabrúar, 14 úr flugþjónustunámi, fimm úr flugumferðarstjórn, þrír úr flugrekstrarfræði og einn atvinnuflugmaður. Útskriftin fór fram í Andrews Theater á Ásbrú að viðstöddu fjölmenni.
View imagesÞriggja daga vinnuhelgi ÍAK einkaþjálfaranema á Ásbrú
View imagesNýnemar í tæknifræðinámi Keilis unnu á dögunum örverkefni sem gekk út á að byggja fjarstýrða kúplingu í bíl. Þeir höfðu 48 tíma til að vinna verkefnið, sem gekk að óskum. Nemendur unnu auk þess fleiri minni verkefni ásamt því að vera í hópefli og teymisvinnu fyrstu þrjár vikurnar í náminu.
View imagesMyndir frá útskrift tæknifræðinga hjá Keili, laugardaginn 23. júní 2012
View imagesFjórði bekkur Ísaksskóla í Reykjavík kynntust vísindagöldrum og tæknibrellum í Keili á dögunum.
View imagesMyndir frá endurmenntunarnámskeiði fyrir starfsfólk leikskóla jóga og krakkaleikjum 19. nóvember 2010.
View imagesNámskeið fyrir fagfólk í hreyfingu barna í umsjón Inga Þórs Einarssonar
View images