Fara í efni

Tilkynning frá Háskólabrú vegna hertra sóttvarnaraðgerða

Vegna hertra sóttvarnarráðstafanna verður öllu skólahúsnæði Keilis lokað frá og með fimmtudeginum 25. mars og færist öll kennsla á vegum skólans yfir í fjarnám um leið.

Við munum tryggja góðar upplýsingar til nemenda og starfsfólks á meðan þessum takmörkunum stendur en nemendur fá ítarlegri upplýsingar frá forstöðumanni Háskólabrúar um tilhögun náms og þær breytingar sem af takmörkuninni leiða.

Kennsla áfanga sem eru samkvæmt dagskrá kenndir að fullu á netinu, mun haldast óbreytt innan allra námsbrauta. Nemendur eru hvattir til að nýta rafrænar þjónustuleiðir Keilis svo sem heimasíðu, tölvupóst, Moodle og Teams þar sem við verður komið.

Á þessum tímum er jafnvel enn meiri ástæða til að nýta sér þjónustu námsráðgjafanna og eru þeir sannarlega til þjónustu reiðubúnir að aðstoða við hvað sem er. Þið getið fundið flýtileið á heimasíðunni til nálgast þá en þau eru Þóra (thora@keilir.net) og Skúli (skuli.b@keilir.net). Endilega nýtið ykkur þær rafrænu þjónustuleiðir sem eru í boði til að hafa samband við annað starfsfólks skólans einnig og eftir því sem við á.

Við erum vel í stakk búin til þess að takast á við þessar breytingar og munu allir leggjast á eitt til þess að tryggja góða þjónustu við nemendur okkar á meðan á þessari tímabundnu ráðstöfun stendur. Á Háskólabrúnni starfar frábær hópur kennara og starfsfólks sem mun gera sitt allra besta við þessar aðstæður.

Upplýsingasíða ráðuneytisins um áhrif sóttvarnaráðstafana á skólastarf: mrn.is/skolastarf