Fara í efni

Taktu Háskólabrú með vinnu á tveimur árum

Fjarnám Háskólabrúar Keilis með vinnu, hefst 11. nóvember 2016. Námið tekur tvö ár og hentar sérstaklega vel þeim sem vilja taka lengri tíma eða stunda námið með vinnu. 

Háskólabrú Keilis hefur á undanförnum árum markað sér sérstöðu í að veita einstaklingsmiðaða þjónustu og stuðning við nemendur, ásamt því að miða kennsluhætti við þarfir fullorðinna nemenda. Að jafnaði leggja rúmlega tvö hundruð einstaklingar stund á aðfaranám að háskólanámi í Keili, þar af rúmlega helmingurinn í fjarnámi.

Fyrsti árgangur Háskólabrúar hóf nám í Keili árið 2007 en síðan þá hafa hátt í 1.500 einstaklingar lokið náminu. Af þeim hafa langflestir haldið áfram í háskólanám bæði hérlendis og erlendis og gildir námið meðal annars til inngöngu í allar deildir Háskóla Íslands. 

Boðið er upp á að taka Háskólabrú á einu ári í fullu námi annaðhvort í fjarnámi eða staðnámi, eða á tveimur árum í fjarnámi, en það fyrirkomulag hentar vel þeim aðilum sem vilja taka lengri tíma eða vilja stunda námið með vinnu. 

  • Fjarnám Háskólabrúar Keilis með vinnu (tvö ár) hefst 11. nóvember 2016
  • Fjarnám Háskólabrúar Keilis (eitt ár) hefst 5. janúar 2017

Nánari upplýsingar um námið á www.haskolabru.is