Fara í efni

Skólasetning í Háskólabrú Keilis

Skólasetning í staðnámi og fjarnámi Háskólabrúar fer fram fimmtudaginn 15. ágúst 2019 kl. 10:00 í aðalbyggingu Keilis á Ásbrú í Reykjanesbæ. Hópefli hefst í framahaldi af skólasetningu og stendur til kl 16:00. Við erum full tilhlökkunar að hefja viðburðaríkt skólaár. 

Almennar upplýsingar fyrir nemendur má nálgast á nemendasíðum Keilis

Farið verður yfir skipulag skólans, námsins og hópnum hrist saman. Kennarar kynna sína námsgrein, kennsluáætlanir og vinnulag. Mikilvægt er að allir mæti með tölvur sínar með sér þar sem tölvudeildin mun fara yfir helstu atriði varðandi notkun tölva hér við skólann. Þá verður nemendum veitt kennsla og aðgangur á Moodle, kennslukerfi Keilis. Þessi vika hefur reynst nemendum dýrmæt í reynslubankann og góð byrjun á krefjandi og skemmtilegu námi.

Gagnlegar upplýsingar fyrir nýnema

Hægt er að nálgast almennar upplýsingar um aðstöðu, opnunartíma bygginga, þjónustu, íbúðir, samgöngur og umhverfið á Ásbrú, á síðu fyrir nýnema hjá Keili: Gagnlegar upplýsingar fyrir nýnema. Einnig má nálgast upplýsingar á heimasíðunni fyrir nýnema í fjarnámi og staðnámi.