Fara í efni

Opinn kynningarfundur um Háskólabrú Keilis

Keilir býður upp á opinn kynningarfund um Háskólabrú Keilis fyrir þá sem hyggja á aðfaranám til háskóla. Kynningin fer fram í aðalbyggingu Keilis á Ásbrú í Reykjanesbæ miðvikudaginn 3. maí kl. 17:30. Boðið verður upp á léttar veitingar, súpu og brauð.

Hægt verður að fræðast um Háskólabrú í staðnámi og fjarnámi sem er hægt að sækja bæði með og án vinnu. Alls hafa um 1.500 einstaklingar lokið náminu og hefur Keilir markað sér sérstöðu í að veita einstaklingsmiðaða þjónustu og stuðning við nemendur. Kennsluhættir miða við þarfir fullorðinna nemenda, miklar kröfur eru gerðar um sjálfstæði í vinnubrögðum og eru raunhæf verkefni lögð fyrir. Við veitum nemendum okkar persónulega þjónustu og reynum að efla sjálfstraust þeirra og sjálfstæði.

Forstöðumaður Háskólabrúar kynnir fyrirkomulag námsins auk þess sem námsráðgjafar svara spurningum gesta. Allir velkomnir.

Vinsamlegast skráið þátttöku hér.