Fara í efni

Nýtt tækifæri til náms

Nýtt tækifæri til náms
Nýtt tækifæri til náms

Háskólabrú Keilis er eins árs nám sem miðar að því að undirbúa nemendur sem eiga ólokið stúdentsprófi undir kröfuhart háskólanám. Á Háskólabrú Keilis er boðið upp á aðfararnám í félagsvísinda- og lagadeild, hugvísindadeild, viðskipta- og hagfræðideild og verk- og raunvísindadeild. Háskólabrú hefur undanfarin ár markað sér sérstöðu í einstaklingsmiðaðri þjónustu og stuðningi við nemendur og á Ásbrú hefur myndast skemmtilegt námsmannasamfélag í nánu sambýli við öflugt og ört vaxandi frumkvöðla- og atvinnulíf á svæðinu.

Eina aðfaranám á Íslandi í samstarfi við Háskóla Íslands
 
Keilir er eini skólinn á Íslandi sem býður upp á aðfararnám í samstarfi við Háskóla Íslands, sem þýðir að námið veitir útskrifuðum nemendum réttindi til að sækja um nám við HÍ, sem og alla aðra háskóla á Íslandi, auk fjölda erlendra háskóla. Þetta samstarf við HÍ gerir það að verkum að nemendur hafa að námi loknu aðgang að mesta námsframboði landsins.
 
Kennsluhættir sem gagnast fullorðnum nemendum
 
Kennsluaðferðir á Háskólabrú eru fjölbreyttar og hefur skólinn tileinkað sér speglaða kennslu þar sem áhersla er á virkni nemenda í kennslutímum. Námið hefur gefið fjölda fólks nýtt tækifæri til náms og hafa flestir útskrifaðir nemendur hafið háskólanám að náminu loknu. Kennt er bæði í staðnámi og fjarnámi, auk þess sem boðið er uppá staðnám í Háskólabrú á Akureyri í samstarfi við SÍMEY.
 
Rúmlega þúsund einstaklingar hafa útskrifast úr Háskólabrú Keilis síðan skólinn hóf starfsemi og hafa langflestir haldið áfram í námi. Metnaður nemenda okkar til áframhaldandi náms er því skýr og reynsla þeirra af námi í Háskólabrú Keilis reynst mikilvægt veganesti til að takast á við fjölbreytt nám á háskólastigi.
 
 
Umsóknarfrestur um nám á haustönn 2014, er til 10. júní næstkomandi. Nánari upplýsingar um námið má nálgast á: www.haskolabru.is