Fara í efni

Útskrift nemenda í fjarnámi Háskólabrúar

Útskriftin fer fram í Andrews Theater á Ásbrú
Útskriftin fer fram í Andrews Theater á Ásbrú

Föstudaginn 13. janúar fer fram útskrift nemenda úr fjarnámi Háskólabrúar Keilis. Athöfnin fer fram í Andrews Theater á Ásbrú og hefst kl. 15:00.

Útskriftarnemendur eiga að mæta kl. 13:30, vegna myndatöku og æfingar. Nemendur eru beðnir um að senda póst á utskrift@keilir.net til að skrá sig í útskrift. Vinsamlegast takið fram fjölda gesta.