Nú á haustdögum tóku 29 nýnemar hjá Háskóla Íslands við styrkjum úr Afreks- og hvatningasjóði stúdenta við hátíðlega athöfn í Aðalbyggingu Háskólans. Afreks- og hvatningarsjóðurinn hefur frá árinu 2008 veitt styrki til nýnema sem náð hafa framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs eða aðfaranámi að háskóla og jafnframt látið til sín taka á öðrum sviðum, svo sem í félagsstörfum í framhaldsskóla eða listum og íþróttum. Sjóðurinn styrkir einnig nemendur sem hafa sýnt fádæma seiglu og þrautseigju þrátt fyrir afar erfiðar aðstæður. Styrkupphæð hvers og eins nemur 400 þúsund krónum og eru styrkirnir veittir með stuðningi Aldarafmælissjóðs Háskóla Íslands og Happdrættis Háskóla Íslands.
Að þessu sinni var nemandi af Háskólabrú einn þeirra sem hlaut styrk. Telma Aníka Torfadóttir lauk aðfaranámi frá Háskólabrú Keilis í vor 2025 og hlaut þá hæstu meðaleinkunn sem hafði verið veitt nemanda á Háskólabrú frá upphafi. Telma hefur mikinn áhuga á íslenskri tungu og málefnum barana og hyggst samaeina það í nám í talmeinafræði í framtíðinni. Nú hefur hún innritað sig í sálfræði hjá Háskóla Íslands með málvísindi sem aukagrein.
Við óskum Telmu innilega til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu og óskum henni alls hins besta í framtíðinni.