Fara í efni

Mikill fjöldi umsókna í Háskólabrú Keilis

Annað árið í röð fjölgar umsóknum í Háskólabrú Keilis, en í byrjun júní höfðu borist umtalsvert fleiri umsóknir í námið en á sama tíma í fyrra. Aldrei áður hafa verið jafn margar umsóknir í byrjun júní.
 
Keilir hefur boðið upp á aðfaranám til háskóla frá árinu 2007 og hafa á þeim tíma átt sér stað miklar framfarir í kennsluháttum samhliða breyttum þörfum og kröfum nemenda. Nú geta nemendur því valið að sækja Háskólabrú í staðnámi eða fjarnámi, bæði með og án vinnu. Þá mun Keilir bjóða upp á Háskólabrú á ensku frá og með haustinu. Námið er hugsað fyrir einstaklinga með annað móðurmál en íslensku sem hyggja á nám í Háskóla Íslands en hafa ekki lokið stúdentsprófi.
 
Boðið er upp á Háskólabrú í samstarfi við Háskóla Íslands og gildir námið til inntöku í allar deildir háskólans. Keilir hefur markað sér sérstöðu í að veita einstaklingsmiðaða þjónustu og stuðning við nemendur. Kennsluhættir miða við þarfir fullorðinna nemenda, miklar kröfur eru gerðar um sjálfstæði í vinnubrögðum og eru raunhæf verkefni lögð fyrir. Kannanir í Háskóla Íslands á gengi nýnema hafa sýnt að nemendur sem koma úr Háskólabrú Keilis eru meðal þeirra efstu yfir þá sem telja sig vel undirbúna fyrir háskólanám. 
 
Umsóknarfrestur í Háskólabrú Keilis er til 11. júní næstkomandi