Fara í efni

Kynning á Háskólabrú Keilis á Selfossi

Keilir býður upp á opinn kynningarfund á Selfossi um nám í Háskólabrú fyrir þá sem hyggja á aðfaranám til háskóla. Kynningin fer fram í Fjölheimum á Selfossi miðvikudaginn 10. maí kl. 17:30.

Hægt verður að fræðast um Háskólabrú í staðnámi og fjarnámi sem er hægt að sækja bæði með og án vinnu. Alls hafa um 1.500 einstaklingar lokið náminu og hefur Keilir markað sér sérstöðu í að veita einstaklingsmiðaða þjónustu og stuðning við nemendur. Kennsluhættir miða við þarfir fullorðinna nemenda, miklar kröfur eru gerðar um sjálfstæði í vinnubrögðum og eru raunhæf verkefni lögð fyrir. Við veitum nemendum okkar persónulega þjónustu og reynum að efla sjálfstraust þeirra og sjálfstæði.

Allir velkomnir.