Fara í efni

Hæsta meðaleinkunn í Háskólabrú frá upphafi

Háskólabrú Keilis brautskráði samtals 109 nemendur úr öllum deildum við hátíðlega athöfn í Hljómahöll í Reykjanesbæ, föstudaginn 12. júní 2020. 
 
Berglind Kristjánsdóttir, forstöðumaður Háskólabrúar stýrði útskrift og afhenti viðurkennignarskjöl ásamt Margréti Hanna, verkefnastjóra. Dúx Háskólabrúar var Valdís Steinarsdóttir með 9,73 í meðaleinkunn. Er þetta hæsta meðaleinkunn af Háskólabrú frá upphafi. Hún fékk peningagjafir frá Arion banka og Keili. 
 
Þá fékk Alexandra Rós Jankovic menntaverðlaun Háskóla Íslands fyrir góðan námsárangur á Háskólabrú og eftirtektarverða þrautseigju. Harpa Ægisdóttir flutti ræðu útskriftarnema.
 
Yfir tvö þúsund útskrifaðir af Háskólabrú Keilis
 
Þau tímamót voru við þetta tækifæri að tvöþúsundasti nemandinn útskrifaðist af Háskólabrú og féll sá heiður Sjöfn Sigurbjörnsdóttur.
 
Eftir athöfnina hafa samtals 2.020 nemendur brautskrást af Háskólabrú frá fyrstu útskrift skólans árið 2008 og hafa lang flestir þeirra haldið áfram í háskólanám bæði hérlendis og erlendis. Aldrei hafa jafn margir nemendur stundað frumgreinanám í Keili og á þessu námsári og hafa umsóknir aldrei verið jafn margar og fyrir komandi haustönn. Þeir bætast við fjölmennan hóp nemenda sem hófu nám síðastliðið vor. Að auki hefur verið mikil ásókn í ný námsúrræði skólans í sumar, bæði Háskólabrú með undirbúningsáföngum og sumarönn á Háskólabrú.
 
Fjölmennasta útskrift í sögu Keilis
 
Keilir útskrifaði samtals 209 nemendur þennan dag og er þetta fjölmennasta brautskráning nemenda skólans frá upphafi. Samtals hafa nú 3.858 nemendur lokið námi við deildir skólans sem var stofnaður á Ásbrú í Reykjanesbæ í maí 2007.  Jóhann Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri Keilis, flutti ávarp auk þess sem Þorgrímur Þráinsson flutti hátíðarræðu. Vegna aðgangstakmarkanna var athöfnin send út í beinu streymi á samfélagsmiðlum Keilis.
 
Myndir frá útskrift Keilis 12. júní 2020 (ljósmyndari: Oddgeir Karlsson)