Fara í efni

Aukin ásókn í nám á Háskólabrú

Undanfarin ár hefur ásókn í nám á Háskólabrú farið stöðugt vaxandi. Um þrjú hundruð umsóknir hafa borist í nám á komandi haustönn og hefur fjöldi umsókna á þessum tíma aldrei verið meiri en nú.

Starfsfólk Háskólabrúar og námsráðgjafar Keilis vinna þessa dagana úr umsóknum og verða allir umsækjendur sem uppfylla skilyrði boðaðir í persónuleg inntökuviðtöl. Vegna fjölda umsókna biðjum við umsækjendur um að sýna biðlund á meðan unnið er úr innsendum gögnum.

Boðið er upp á Háskólabrú í samstarfi við Háskóla Íslands og gildir námið til inntöku í allar deildir háskólans. Samtals hafa yfir tvö þúsund einstaklingar lokið náminu og hefur mikill meirihluti þeirra haldið áfram í háskólanám bæði hérlendis og erlendis við góðan orðstír.   

Nánari upplýsingar veitir Berglind Kristjánsdóttir, forstöðukona Háskólabrúar.