Flugkennaraskírteinið (FI) undirbýr þig fyrir flugkennarahlutverkið. Á þessu 12 vikna námskeiði lærir þú hvernig á að undirbúa leiðbeiningar og veita verklega flugþjálfunartíma. Farið verður yfir helstu atriði kennslufræðinnar, sálfræði, mannlegrar getu og afköst samtvinnað við kennsluaðferðir, framkvæmd kennslu flugæfinga, meðhöndlun mistaka flugnema, gerð kennsluáætlana og notkun kennslutóla, auk skjalavistunar og gerð prófa og annara skjala. Einnig er farið í fyrirlestrasmíði og framsögu sem er kennt og þjálfað með styttri og lengri fyrirlestrum í kennslustofu ásamt tækni í vendinámi.
Flugkennaranámið er góð leið til að öðlast frekari reynslu eftir að þú hefur lokið við atvinnuflugmannsnámið, og það veitir þér tækifæri til að bæta flugmannshæfileika þína sem eru eftirsóttir af flugrekendum, s.s. samvinnu tveggja flugmanna, greina hættur og grípa inn í þegar þess gerist þörf og leiðbeina öðrum flugmanni í réttan farveg.
Kennslutækni (Teaching and Learning)
Kjarni kennslufræðinnar eru kennd á um 2-3 vikum þar sem farið er yfir helstu atriði kennslufræðinnar, sálfræði, mannlegrar getu og afköst samtvinnað við kennsluaðferðir. Einnig er farið í fyrirlestrasmíði og framsögu sem er kennt og þjálfað með styttri og lengri fyrirlestrum í kennslustofu ásamt tækni í vendinámi.
Æfing
Næsti hluti bóklegrar kennslu felst að mestu leiti um æfingu,undir leiðsögn leiðbeinanda, þar sem nemendur læra að beita fyrrgreindum fræðum og aðferðum. Er þá nemendum ýmist gert að undirbúa sig og æfa heima, með öðrum samnemendum eða raunverulegum nemendum í stuðningshópum. Með þessu gagnvirka námi fá nemendurnir krefjandi verkefni og reynslu með raunverulegum nemendum ásamt leiðsögn frá reyndum kennurum.
Upprifjunarnámsskeið flugkennara er eins til tveggja daga námsskeið og er nauðsynlegur þáttur í að viðahalda réttindum flugkennarans. Efni námsskeiðsins er breytilegt hverju sinni og tekur á kennslutækni, breytingum á reglugerðum, öryggi í flugi osfrv.
Verðskrá Flugakademíu Íslands (gildir frá 1. maí 2019)
Stéttarfélög bjóða oft uppá að standa straum af slíkum námsskeiðum og eru umsækjendur hvattir til að leita sér upplýsinga hjá sínu stéttarfélagi.
Umsókn og næstu námskeið
Vinsamlegast hafið samband við Flugakademíu Íslands fyrir nánari upplýsingar og skráningu á námskeiðið. Upprifjunarnámsskeið er haldið samhliða flugkennaranámsskeiðum og miðast dassetning við upphaf þess. Nákvæmar dagssetningar upprifjunarnámsskeiðsins er svo tilkynnt með nokkurra vikna fyrirvara.
Flugakademía Keilis býður upp á sex vikna námskeið fyrir verðandi flugkennara (Flugkennaraáritun) sem undirbýr þig fyrir alla þætti flugkennslu. Námskeiðið tekur á undirbúningi flugtíma og framkvæmd kennslustunda.
Að öllu jöfnu er námskeiðið haldið tvisvar á ári, Mars og Október.
Bóklegur hluti námsins er 125 stunda kvöldnámskeið sem er kennt á kvöldin.
Verklega þjálfunin eru 30 flugkennslustundir sem má taka samhliða bóklega hlutanum eða eftir hann.
Námskeiðið veitir réttindi til flugkennslu. Náminu skal vera lokið innan 6 mánaða frá upphafi námskeiðsins.
Kennslutækni (Teaching and Learning)
Kjarni kennslufræðinnar eru kennd á um 2-3 vikum þar sem farið er yfir helstu atriði kennslufræðinnar, sálfræði, mannlegrar getu og afköst samtvinnað við kennsluaðferðir. Einnig er farið í fyrirlestrasmíði og framsögu sem er kennt og þjálfað með styttri og lengri fyrirlestrum í kennslustofu ásamt tækni í vendinámi.
Æfing
Næsti hluti bóklegrar kennslu felst að mestu leiti um æfingu,undir leiðsögn leiðbeinanda, þar sem nemendur læra að beita fyrrgreindum fræðum og aðferðum. Er þá nemendum ýmist gert að undirbúa sig og æfa heima, með öðrum samnemendum eða raunverulegum nemendum í stuðningshópum. Með þessu gagnvirka námi fá nemendurnir krefjandi verkefni og reynslu með raunverulegum nemendum ásamt leiðsögn frá reyndum kennurum.
Verkleg þjálfun samanstendur af 30 kennslustundum í flugvél og flughermi með reyndum flugkennara ásamt æfingu og reynslu í kennslu í fyrir- og eftirflugskennslu.
Hérna sameinast kennslufræðin, flugfærnin og aðferðir við að sýna, styrkja og leiðbeina flugnemum við hinar ýmsu aðstæður. Nemendur æfa sig í 25 klst með reyndum kennara og 5 klst með öðrum flugkennaranema.
Flugkennaranámskeið á vegum Flugakademíu Íslands hefst næst Mánudaginn 11. janúar 2021. Bókleg kennsla fer fram á starfstöð skólans í Hafnarfirði, og verklega þjálfun getur farið fram bæði í KEF og RVK.
Verðskrá Flugakademíu Keilis - Flugskóla Íslands (gildir frá 1. maí 2019)
Upprifjunarnámsskeið flugkennara er eins til tveggja daga námsskeið og er nauðsynlegur þáttur í að viðahalda réttindum flugkennarans. Efni námsskeiðsins er breytilegt hverju sinni og tekur á kennslutækni, breytingum á reglugerðum, öryggi í flugi osfrv.
Verðskrá Flugakademíu Íslands (gildir frá 1. maí 2019)
Stéttarfélög bjóða oft uppá að standa straum af slíkum námsskeiðum og eru umsækjendur hvattir til að leita sér upplýsinga hjá sínu stéttarfélagi.
Umsókn og næstu námskeið
Vinsamlegast hafið samband við Flugakademíu Íslands fyrir nánari upplýsingar og skráningu á námskeiðið. Upprifjunarnámsskeið er haldið samhliða flugkennaranámsskeiðum og miðast dassetning við upphaf þess. Nákvæmar dagssetningar upprifjunarnámsskeiðsins er svo tilkynnt með nokkurra vikna fyrirvara.
Blindflugskennaraáritun felur í sér styttra bóklegt og verklegt nám en lengd námsins fer eftir fyrri reynslu og réttindum umsækjanda. Innifalið í náminu er nauðsynleg kennsla í flughermi og efni.
Verðskrá Flugakademíu Keilis - Flugskóla Íslands (gildir frá 1. maí 2019). Umfang náms er breytileg eftir réttindum og reynslu kennarans.
Næstu námskeið
Nákvæmar dagssetningar bóklega hluta námskeiðsins er svo tilkynnt með nokkurra vikna fyrirvara.
Flokksráritunarkennararéttindi fela í sér styttra bóklegt og verklegt nám en lengd námsins fer eftir fyrri reynslu en bóklegt nám inniheldur 10 kennslustundir og kennsluefni.
Verðskrá Flugakademíu Keilis - Flugskóla Íslands (gildir frá 1. maí 2019)
Handhafar flugkennararéttinda geta hafið nám hvenær sem er en annars eru bókleg námsskeið kennd samhliða bóklegum flugkennararéttindum.