Hefurðu áhuga á að verða atvinnuflugmaður og geta starfað við atvinnuflug í Evrópu? Samtvinnað atvinnuflugnám er krefjandi og þarfnast mikils sjálfsaga og vinnu við að ná settu markmiði. Að loknu námi öðlast þú samevrópskt atvinnuflugmannsskírteini, ásamt öllum þeim réttindum sem til þarf, til að geta starfað sem atvinnuflugmaður hjá evrópskum flugrekanda.
Hér eru að finna upplýsingar um inntökuskilyrði í samtvinnað atvinnuflugnám á vegum Flugakademíu Íslands
Umsækjandi verður að vera með hreint sakavottorð og geta gengist við bakgrunnskoðun lögregluyfirvalda, vegna óhefts aðgangsheimildar inn á flugvallarasvæði Keflavíkur- og Reykjavíkurflugvallar. Nemanda ber að verða sér út um sakavottorð hjá viðkomandi lögregluembætti fyrir námið.
Einnig má benda á að við lok náms getur Samöngustofa einnig krafist sakarvottorðs eða bakgrunnsskoðunar, vegna útgáfu á flugskírteini.
Stúdentspróf /sambærilegt nám (a.m.k 200 einingar) með að minnsta kosti eftirfarandi lágmarkseiningar í eftirtöldum greinum:
Þeir sem þurfa á að halda, geta leitað í áfanga sem er í boði, svo sem hlaðborð Keilis eða aðra sambærilega áfanga á netinu. Nánari upplýsingar um Hlaðborð Keilis er hér.
Erlendir þegnar frá landi utan EES (ESB) og/eða EFTA sem ætla að búa á Íslandi lengur en þrjá (3) mánuði verða að hafa gild dvalarleyfi. Fáðu nánari upplýsingar um dvalarleyfi og námsleyfi.
Stúdentspróf /sambærilegt nám (a.m.k 200 einingar) með að minnsta kosti eftirfarandi lágmarkseiningar í eftirtöldum greinum:
Þeir sem þurfa á að halda, geta leitað í áfanga sem er í boði, svo sem hlaðborð Keilis eða aðra sambærilega áfanga á netinu. Nánari upplýsingar um Hlaðborð Keilis er hér.
Skólinn miðar að því að bjóða upp á úrvals kennslu, námsefni og stoðefni í staðnámi og afnot á Moodle kennslukerfi í undirbúningi fyrir hverja kennslustund. Skólinn notar einnig til þess nýjustu námstækni sem völ er á, þar á meðal markaðsleiðandi þjálfun sem byggir á námi í gegnum gagnvirkan tölvuhugbúnað, í samvinnu við CAE Oxford Aviation Academy. Gagnvirkt sjónrænt námsefnið auðveldar lærdóminn, þú getur séð dæmi hérna.
Bóknámið yfir 920 klst. að lengd í staðnámi, skiptist í tvo hluta; BASIC grunnám og ATPL ADVANCED framhaldsnám. Þú byrjar á grunnnámskeiði sem samanstendur af 9 bóknámsfögum og miða að því að veita nauðsynlega þekkingu fyrir fyrstu 3 stig flugþjálfunar. Eftir grunnnámskeiðið muntu fara í ATPL ADVANCE framhaldsnám (Airline Transport Pilot License) sem er bóklegt nám til réttinda atvinnuflugmannsréttinda, sem samanstendur af 14 mismunandi námsefnum.
Verkleg flugþjálfun er skipt niður í fimm mismunandi áfanga ( fasa ), hvert þeirra með mismunandi verkefni en með stefnu á sama markmið — að veita þér nauðsynlega færni og þekkingu til að geta flogið sem atvinnuflugmaður með fjölhreyfla blindflugsréttindi og vottun í áhafnasamstarfi.
Áætlunin samanstendur af flugtímum í flugvélum af gerðinni Diamond DA20, DA40 og DA42 NG, Piper Archer DX , Piper PA44 Seminole og Technam P2002-JF flugvélum, ásamt flughermum af gerðinni ALSIM ALX og Diamond DSIM.
Öll flugþjálfun fer fram í flugvélaflota okkar, sem eru af gerðinni;
og í flughermisflota okkar sem eru af gerðinni ALSIM ALX og Diamond DSIM.
Flugþjálfun er framkvæmd í 5 áföngum (fösum) og er skipulögð yfir allan námstímann, með bóknámi.
Hér getur þú fundið svar við helstu spurningum varðandi námið. Ef þú hefur frekari spurningar eða athugasemdir, ekki hika við að hafa samband við okkur á flugakademia@keilir.net
Námið, sem er yfir 920 klst. langt er skipulagt af skólanum og tekur um 18-24 mánuði að ljúka ( 4 annir ). Nemandi skuldbindur sig til að stunda námið eingöngu á meðan á námstíma stendur. Nemandi getur því ekki reiknað með að vinna eða stunda annað nám meðfram því.
Hámarkstími náms samkvæmt reglugerð eru 36 mánuðir frá upphafi og ber nemanda að ljúka því innan þess.
Námið er lánshæft hjá LÍN - Lánasjóði íslenskra námsmanna sem 4 anna nám.
Öll flugþjálfun fer fram í flugvélaflota okkar, sem eru af gerðinni;
og í flughermisflota okkar sem eru af gerðinni ALSIM ALX og Diamond DSIM.
Flugþjálfun er framkvæmd í 5 áföngum (fösum) og er skipulögð yfir allan námstímann, með bóknámi.