17.01.2020
Keilir brautskráði 89 nemendur við hátíðlega athöfn í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ, föstudaginn 17. janúar 2020. Við athöfnina voru brautskráðir 57 nemendur af Háskólabrú, 25 atvinnuflugmenn og sjö nemendur úr fótaaðgerðafræði. Var þetta í fyrsta sinn sem útskrift Keilis fer fram í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ, en fjölmennar útskriftir skólans voru búnar að sprengja utan af sér Andrews Theater á Ásbrú þar sem þær höfðu farið fram undanfarin ár.
Jóhann Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri Keilis, flutti ávarp og stýrði athöfninni, auk þess sem Magnús Scheving flutti hátíðarræðu.
Samtals hafa nú 3.648 nemendur lokið námi við deildir skólans sem var stofnaður á Ásbrú í Reykjanesbæ í maí 2007. Í lok ársins 2019 voru yfir eitt þúsund nemendur skráðir í nám og námskeið á vegum Keilis og hafa aldrei fleiri aðilar lagt stund á nám við skólann en nú.
Á fjórða hundrað atvinnuflugnemar hafa útskrifast frá Keili
Flugakademía Keilis - Flugskóli Íslands brautskráði 25 atvinnuflugnema. Samtals hafa 332 atvinnuflugmenn útskrifast sem atvinnuflugmenn frá Keili, en ásamt Flugskóla Íslands hafa skólarnir tveir brautskráð yfir tólfhundruð atvinnuflugmenn frá stofnun þeirra. Að jafnaði leggja á þriðja hundrað nemendur stund á flugnám við skólann á ári hverju.
Björn Ingi Knútsson, forstöðumaður Flugakademíu Keilis - Flugskóla Íslands stýrði útskrift og afhenti atvinnuflugmönnum prófskírteini ásamt Baldvini Birgissyni skólastjóra. Arnar Freyr Jónsson fékk viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í atvinnuflugmannsnámi með 9,82 í meðaleinkunn. Þetta er önnur hæsta meðaleinkunn í sögu Flugakademíunnar. Fékk hann gjafir frá Icelandair, Air Iceland Connect, Norland Air og Air Atlanta. Ræðu útskriftarnema í atvinnuflugnámi hélt Lars Gustaf Danielsson.
Myndir frá útskrift Keilis 17. janúar 2020 (ljósmyndari: Oddgeir Karlsson)