Flýtilyklar
Stafrænar upptökur og úrvinnsla
Grunnkennsla í notkun stafrænna upptökuvéla, úrvinnslu og klippingu myndefnis og hljóðsetningu. Þátttakandinn lærir að koma efninu frá sér á helstu samfélagsmiðla, svo sem YouTube, flickr, Facebook og almennar vefsíður. Námskeiðið er einkar hagnýtt bæði fyrir þá sem vilja markaðssetja hugmyndir sínar á vefnum, en einnig fyrir þá sem vilja læra vinnslu stafrænna myndskeiða.
Markmið námskeiðsins
- Að gera þátttakendur færa í að taka upp myndefni á stafrænar upptökuvélar, klippa og hljóðsetja.
- Að gera þátttakendur færa í að kynna hugmyndir sínar með stuttum myndskeiðum.
- Að gera þáttakendur færa í að ganga frá myndefni yfir á geisladiska og vefinn.
Kennslufyrirkomulag og tímasetning
Námskeiðið er byggt upp á fyrirlestrum og sýnikennslu leiðbeinanda sem og verkefnavinnu þátttakenda. Námskeiðið krefst þess að þátttakendur taki virkan þátt í námskeiðinu. Námskeiðið er 20 kennslustundir og verður kennt 28. mars - 8. apríl. Kennt verður í aðalbyggingu Keilis að Ásbrú. Kennt verður á ensku.
Helstu viðfangsefni námskeiðsins
- Notkun stafrænna upptökuvéla
- Færa efni yfir á tölvu, klippa og hljóðsetja
- Ganga frá myndefni fyrir mismunandi miðla, s.s. vefinn og geisladiska
- Vefsíðugrunnur
Skráning og verð
Áhugasamir hafi samband við:
Arnbjörn Ólafsson
Deildarstjóri Orku- og tækniskóla Keilis
Sími: 578 4000
Netfang: kit@keilir





