Keilir er alhliða menntafyrirtæki í eigu háskóla, fyrirtækja og almannasamtaka

Í námskeiðinu er lögð áhersla á að kenna helstu hugtök og grunnatriði í verkefnastjórnun og gefa þátttakendum góða yfirsýn yfir verkefnastjórnun sem

Verkefnastjórnun - Hugmynd, áætlun og framkvæmd

Í námskeiðinu er lögð áhersla á að kenna helstu hugtök og grunnatriði í verkefnastjórnun og gefa þátttakendum góða yfirsýn yfir verkefnastjórnun sem heilsteypta fræðigrein. Megináhersla námskeiðsins er á áætlanagerð í verkefnum, þ.e. gerð heildstæðra verkefnisáætlana sem fela í sér m.a. tímaáætlanir og kostnaðaráætlanir.   


Markmið námskeiðsins

Að námskeiði loknu eiga þátttakendur að þekkja helstu aðferðir verkefnastjórnunar, geta stillt upp verkáætlun með markmiðum og nýtingu aðfanga og haldið utan um ferlið frá upphafi til enda.


Kennslufyrirkomulag og tímasetning

Kennslan miðast við raundæmi, þar sem þátttakendur vinna saman að lausnum raunverulegra verkefna undir handleiðslu og leiðbeinanda. Námskeiðið er 10 kennslustundir og verður kennt föstudaginn 12. nóvember (kl. 13:00 - 16:00) og 19. nóvember (kl. 9:00 - 14:30). Kennt verður í stofu A3 í aðalbyggingu Keilis að Ásbrú.


Meðal efnisatriða námskeiðsins

Verkefni og verkefnastjórnun; 
skilgreining verkefna; 
umhverfi verkefna; 
markmiðasetning; 
skipulag; 
stjórnskipulag; 
upplýsingakerfi; 
tímaáætlanir; 
kostnaðaráætlanir; og  
ræs og lúkning verkefna. 


Skráning og verð

Verð fyrir námskeiðið (þ.m.t. námskeiðsgögn): kr. 17.000. Nemendur Keilis fá 50% afslátt á námskeiðið. Kennari er Karl Friðriksson, framkvæmdastjóri mannauðs- og markaðstofu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.



Áhugasamir hafi samband við:
Arnbjörn Ólafsson
Deildarstjóri Orku- og tækniskóla Keilis
Sími: 578 4000
Netfang: kit@keilir

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Á næstunni

empty
empty1

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf