Keilir er alhliða menntafyrirtæki í eigu háskóla, fyrirtækja og almannasamtaka

Frumkvöðlar hafa oft ekki úr miklum fjármunum að spila til að koma sér á framfæri. Í þessu námskeiði er farið yfir þá miðla sem standa frumkvöðlum tilboða

Óhefðbundin markaðssetning

Frumkvöðlar hafa oft ekki úr miklum fjármunum að spila til að koma sér á framfæri. Í þessu námskeiði er farið yfir þá miðla sem standa frumkvöðlum tilboða og þeim gerð góð skil. Einnig er farið almennt yfir helstu þætti hefðbundinnar og óhefðbundinnar markaðssetningar, t.a.m. með atburðastjórnun, notkun samfélagsmiðla, guerilla marketing (gerð fréttatilkynninga, samkeppnir, getraunir, o.fl.)


Markmið námskeiðsins

Markmið námskeiðsins er að gera þátttakendum mögulegt að setja upp markaðsáætlun og fjárhagsáætlun, byggða á ódýrum og hagkvæmum lausnum. Þátttakendur munu vinna raunverulegar markaðsáætlanir fyrir hugmyndir sínar, með áherslu á að hugsa útfyrir rammann, hugmyndaauðgi og óhefðbundnar leiðir í markaðssetningu. Þátttakendur munu geta nýtt reynslu og þekkingu úr öðrum námskeiðum, svo sem myndvinnslu, uppsetningu vefs og úrvinnslu myndbanda.


Kennslufyrirkomulag og tímasetning

Námskeiðið er í formi fyrirlestra og verkefna. Þátttakendur munu vinna að eigin markassetningu undir leiðsögn kennara. Námskeiðið er 15 kennslustundir og verður kennt 7. og 14. apríl. Nánari upplýsingar um tímasetningu verður birt síðar. Kennt verður í Frumkvöðlasetrið á Ásbrú.


Efni námskeiðs

  • Uppsetning og undirbúningur markaðssetningar og gerð markaðsáætlana.
  • Kostnaður og fjárhagsáætlanir.
  • Yfirlit yfir hefðbundna markaðssetningu og helstu miðla.
  • Yfirlit yfir notkun og nýtingu óhefðbundna miðla í markaðssetningu: Samfélagsmiðlar, myndbönd, viral marketing, guerilla marketing, notkun vefmiðla, fréttatilkynningar, blog, viðburðir, tölvupóstar, o.fl.
  • Farið yfir mismunandi mismunandi aðferðir og leiðir til markaðssetningar, þær bornar saman og skoðaðar með tilliti til mismunandi hugmyndar, vöru eða markaðsátaks.
  • Hvað hentar hugmyndinni þinni? Þátttakendur vinna raunverulega áætlun og hugmyndir að markaðssetningu sinnar hugmyndar. 

Skráning og verð

Verð fyrir námskeiðið (þ.m.t. námskeiðsgögn): kr. 20.000. Nemendur Keilis fá 50% afslátt á námskeiðið. Kennari er Þóranna K. Jónsdóttir, verkefnastjóri Frumkvöðlasetursins á Ásbrú.



Áhugasamir hafi samband við:
Arnbjörn Ólafsson
Deildarstjóri Orku- og tækniskóla Keilis
Sími: 578 4000
Netfang: kit@keilir

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Á næstunni

empty
empty1

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf