Keilir er alhliða menntafyrirtæki í eigu háskóla, fyrirtækja og almannasamtaka

Fjármálalæsi er getan til að lesa, greina, stjórna og fjalla um fjárhagslega þætti sem hafa áhrif á efnahagslega velferð einstaklinga. Það felur í sér

Fjármálalæsi

Fjármálalæsi er getan til að lesa, greina, stjórna og fjalla um fjárhagslega þætti sem hafa áhrif á efnahagslega velferð einstaklinga. Það felur í sér getuna til að greina valkosti í fjármálum, fjalla um peninga án vandkvæða, gera áætlanir til framtíðar og bregðast skynsamlega við breyttum forsendum ákvarðana í fjármálum, þar með talið í efnahagsumhverfinu. Fjármálalæsi byggist á þekkingu, viðhorfum og hegðun.


Markmið námskeiðsins er þríþætt

Að auka almenna þekkingu á eigin fjármálum og hæfni til að stjórna þeim.
Auka skilning á fjármálum svo viðkomandi geti tekið þátt í almennum umræðum um fjármál og efnhagsmál.
Auka hæfni einstaklinga til að feta sig á vinnumarkaðnum.


Kennslufyrirkomulag og tímasetning

Námskeiðið byggist á fyrirlestrum og umræðum þar sem rætt er um hlutina á mannamáli og þeir settir í samhengi við okkar daglega líf. Reynt er að hafa tæknleg atriði í lágmarki – þó verður notuð framsetning á línuritum og í tölfum til að sýna hlutina með myndrænum hætti og einstaka grunnskólaútreikningar nýttir til útskýringa.

Námskeiðið er 15 kennslustundir og verður kennt í apríl. Nánari upplýsingar um tímasetningu verður birt síðar. Kennt verður í aðalbyggingu Keilis að Ásbrú.


Efni námskeiðs

Vextir, verðbólga, verðtrygging og vísitölur
  1. Mismunandi tegundir vaxta (s.s. fastir vextir/breytilegir vextir og nafnvextir/raunvextir).
  2. Hvað er verðbólga og hvað veldur henni?
  3. Hvað er verðtrygging og hvernig hefur hún áhrif á lánin okkar og/eða sparnað?
  4. Vísitölur. Hvað eru vísitölur og hvernig virka þær? (t.d. vísitala neysluverðs, hlutabréfavísitölur og gengisvísitalan)
  5. Hlutverk Seðlabanka og stýrivaxta.
  6. Hvað er hagvöxtur?
Sparnaður og skuldir
  1. Afhverju eru vextir lagðir ofan á skuldir?
  2. Hvernig er samband sparnaðar/skulda við vexti og tímalengd sparnaðar/skulda?
  3. Hlutabréf, skuldabréf og sjóðir sem sparnaðarleið.
  4. Farið yfir lífeyrissparnað og hvernig heppilegt er að haga sínum sparnaði eftir aldri og áhættuþoli, meðal annars skoðaðir kostir þess og gallar að geyma séreignarlífeyrissparnað sinn í erlendi mynt (þar sem mikið er um að einstaklingum sé boðið slíkt)
  5. Farið yfir mismunandi tegundir lánaforma og hvernig er skynsamlegt að haga vali á lánaformi og vaxtategund eftir því í hvað lánin eru notuð, skoðaður kostnaður við lántökur.

    Verðtryggð lán
    Óverðtryggð lán, meðal annars farið yfir muninn á því að taka verðtryggð eða óverðtryggð íbúðalán, eins og bankarnir eru farnir að bjóða núna
    Jafngreiðslulán
    Lán með jöfnum afborgunum
    Kúlulán
    Vaxtagreiðslulán
    Visa-kort og yfirdráttur
    Námslán 

Nánari upplýsingar og verð

Verð fyrir námskeiðið (þ.m.t. námskeiðsgögn): kr. 45.000. Nemendur Keilis fá 50% afslátt á námskeiðið. Kennari er Haukur Skúlason, hagfræðingur (M.Sc.) hjá LS Finance.



Áhugasamir hafi samband við:
Arnbjörn Ólafsson
Deildarstjóri Orku- og tækniskóla Keilis
Sími: 578 4000
Netfang: kit@keilir

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Á næstunni

empty
empty1

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf