Flýtilyklar
Þrívíddarteikning og hönnun
Á námskeiðinu verður kennt að nota þrívíddarteikniforritið Rhinoceros (www.rhino3d.com) við hönnun og teikningu á "vatnsheldum"
þrívíddar líkönum. Einnig veða kynntar helstu viðbætur við forritið sem geta nýst við teikningu og einfaldað og stytt
hönnunarferlið. Námskeiðið nýtist þeim sem hafa áhuga á þrívíddarvinnslu og þeim sem þurfa að geta komið
hugmyndum sínum af skissuformi í þrívítt form og í framleiðslu á tölvustúrðum framleiðsluvélum.
Markmið námskeiðsins
Kennslufyrirkomulag og tímasetning
Efni námskeiðs
Skráning og verð
Markmið námskeiðsins
- Að hvetja til frjórar hugsunar í þrívíðu formi.
- Auka skilning á mismunandi aðferðafræði í þrívíddarvinnslu.
- Að gera þátttakendum kleift að koma hugmyndum á framleiðsluhæft form.
- Gera þátttakendur sjálfstæða í áframhaldandi sjálfsnámi í þrívíddarvinnslu.
Kennslufyrirkomulag og tímasetning
Námskeiðið byggist á fyrirlestrum í upphafi tíma, en síðan taka við verkleg verkefni þeim til stuðnings. Notast verður við
kennsluvideo af veraldarvefnum. Námskeiðið er 20 kennslustundir og verður kennt 2. - 9. mars. Kennt verður í aðalbyggingu Keilis að Ásbrú.
Efni námskeiðs
| Notendaviðmótið Skýrð er uppbyggingu forritsins Stillingar á útliti Notkun á tækjastikum Tegundir ferla 2D teiknitól kynnt 3D teiknitól kynt Munur á poligonmodeli og nurbmodeli Solid model kynnt og eiginleikar þeirra Notkun plana Uppbygging 3D-Líkana Gerð raunsærra tölvumynda Grunnatriði við gerð mynda |
Gerð málsetra teikninga Uppsetning blaðsíðna Teikning sett í skala Gerð PDF skjala Undirúningur fyrir framleiðslu Hvaða gögn þurfa framleiðsluvélar Flutningur á önnus skráarsnið Viðbætur V-Ray Maxwellrender T-splines Box-edit Rhino Photo Solver |
Skráning og verð
Verð fyrir námskeiðið (þ.m.t. námskeiðsgögn): kr. 28.000. Nemendur Keilis fá 50% afslátt á námskeiðið. Kennari
er Óðinn Bolli Björgvinsson.
Áhugasamir hafi samband við:
Arnbjörn Ólafsson
Deildarstjóri Orku- og tækniskóla Keilis
Sími: 578 4000
Netfang: kit@keilir
Á næstunni
18.02.2012





