Keilir | Símenntun

Námskeiðið Búðu þig undir stærðfræði á háskólastigi er undirbúnings námskeið í stærðfræði á mannamáli fyrir fólk sem vill og ætlar í verkfræði- og

Búðu þig undir stærðfræði á háskólastigi

Námskeiðið Búðu þig undir stærðfræði á háskólastigi er undirbúnings námskeið í stærðfræði á mannamáli fyrir fólk sem vill og ætlar í verkfræði- og tæknifræðinám í háskóla. 


Markmið námskeiðsins eru

  • Að kenna nemendum að nota stærðfræði sem gott verkfæri.
  • Að þjálfa hugarfar nemanda til aukins sjálfstrausts við próftöku í stærðfræði.
  • Kenna nemendum vinnubrögð við verkefnaskil í stærðfræði.
  • Kenna nemendum að nota vasareikna t.d hvernig svigar, minni, lograr, veldi og hornföll virka ásamt því að kenna að teikna grafískt, þannig að þetta góða hjálpartæki verði besti vinur nemandans. Skoðaðir verða mismunandi vasareiknar og kennt hvernig á að fletta í leiðbeiningabæklingum þegar þess þarf. 
  • Að kenna nemendum að einangra breytur, algebru, summur, diffrun og farið yfir heildun. Farið yfir hugtök eins og: Veldisvísa, rætur, hornaföll, vigrar, lograr og fleira.  

Þátttökugjald

Verð: 36.000 krónur. Innifalið í námskeiðsgjaldinu er námskeiðið sjálft, námskeiðisgögn og rútuferðir klukkan 7.00 frá BSÍ og 17.00 til baka frá Keili.  
 

Lýsing á námskeiðinu

Námskeiðslýsing   Námskeiðið er sérsniðið undirbúningsnámskeið fyrir Verk- og Tæknifræði, einnig nýtist námskeiðið vel fyrir aðrar deildir háskólanáms eins og Efnafræði, Eðlisfræði, Lyfjafræði og Líffræði. Kennd verður að nota stærðfræði sem verkfæri ásamt því að byggja hugarfar fólks í að leysa verkefni og próf. Kennsla á einfalda vasareikna ásamt því að kynna nemendum grafíska vasareikna. Kenndur verður frágangur og framsetning. Leitast er eftir því að nemandi leysi stærðfræðitengd verkefni úr raunveruleikanum í tímum sem gagn verður af. Einnig verður nemendum kennt að taka próf í stærðfræði.   
Hæfniviðmið     Í lokin á nemandi að vita helstu hugtök, hvernig á að lesa milli línana í kennslubókinni og hvernig á að nota stærðfræði sem verkfæri þegar í tæknifræði eða verkfræði er komið.
Grunnupplýsingar   Námskeiðsnúmer: -
Deild/Eining: Orku- og tækniskóli
Einingafjöldi: á ekki við
Lágmarkseinkunn: á ekki við
Námskeiðstegund: Námskeið
Námsstig: Undirbúningsnám
Kennslumisseri: sumar
Kennsluár: 2010
Kennslufyrirkomulag pr viku: þriðjudagar og fimmtudagar
Heildarfjöldi kennslustunda: 6 x 8
Hámarksfjöldi nemenda: 12 x 2.5
Kennarar   Páll Jens Reynisson
Undanfarar / Forkröfur   Stúdentspróf
Námsmat  
Bækur   Ekki er gert ráð fyrir að þátttakendur kaupi námsbækur í tengslum við námskeiðið en kennari gefur útdeilir efni sem nemendur sækja á netið, en farið verður yfir það í námskeiðsbyrjun.
Annað lesefni  
Kennsluáætlun  

Fyrirkomulag kennslu er þannig að kennsla fer fram 2 sinnum í viku 17.00 - 19.30 á  þriðjudögum og fimmtudögum. Nemendum er veitt aðstoð við að leysa dæmi sem lögð verða fyrir.

Námskeiðið stendur yfir í 6 vikur með tveimur 2.5 tíma kennsludegi í hverri viku. 

Vika 1: þriðjudagur 15 júní og fimmtudagur 17 júní
Kennsla á moodle, smá algebra og farið yfir vasareikna. Farið yfir hugarfar nemenda og vinnubrögð. Heimaverkefni 1 kynnt. Hugarfar nemenda eflt.

Vika 2: þriðjudagur 22 júní og fimmtudagur 24 júní
Smá algebra upphitun. Vigrar og hornaföll og farið yfir vasareikna. Skil á heimaverkefni 1 og kynning á heimaverkefni 2. Hugarfar nemenda eflt.      

Vika 3: þriðjudagur 29 júní og fimmtudagur 1 júlí
Smá algebra upphitun. Föll og gröf þeirra, samsetning þeirra. Einangrun breytistærða og farið yfir vasareikna. Summur skoðaðar og þrepasönnun kennd á léttan hátt og farið yfir vasareikna. Skil á heimaverkefni 2 og kynning á heimaverkefni 3. Hugarfar nemenda eflt. 

Vika 4: þriðjudagur 6 júlí og fimmtudagur 8 júlí
Smá algebra upphitun, farið yfir diffrun og farið yfir vasareikna. Skil á heimaverkefni 3 og kynning á heimaverkefni 4. Hugarfar nemenda eflt.    

Vika 5: þriðjudagur 13 júlí og fimmtudagur 15 júlí
Farið yfir diffrun, sýnt hvernig heildun tengist henni og farið yfir vasareikna. Skil á heimaverkefni 4 og kynning á heimaverkefni 5. Hugarfar nemenda eflt. 

Vika 6: þriðjudagur 20 júlí og fimmtudagur 22 júlí
Skil á heimaverkefni 5 og yfirferð á þvi í tíma. Farið yfir dæmigerð íslensk háskólapróf og hugarfar nemenda eflt.



Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar og skráning á námskeiðið hjá Páli Jens Reynissyni: pjr@keilir.net

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf