Keilir er alhliða menntafyrirtæki í eigu háskóla, fyrirtækja og almannasamtaka

Námsleiðin "Frá hugmynd að veruleika" er verklegt frumkvöðlanám, þar sem þátttakendum gefst tækifæri á að gera hugmyndir sínar að veruleika undir leiðsögn

Frá hugmynd að veruleika

Námsleiðin "Frá hugmynd að veruleika" er verklegt frumkvöðlanám, þar sem þátttakendum gefst tækifæri á að gera hugmyndir sínar að veruleika undir leiðsögn fagaðila. Um er að ræða samsetningu bæði hagnýtra námsgreina og vinnu við þróun raunverulegra verkefna undir handleiðslu sérfræðinga. Þátttakendur fá einnig grunnþjálfun og upplýsingar um notkun tækja og hugbúnaðar, til að geta unnið frumgerð hugmynda sinna, svo sem rennibekkja, teikniforrita, eftir því sem verkefni og vörur þurfa á að halda. Einnig fá þátttakendur nauðsynlegt yfirlit í vöruhönnun, markaðsáætlunum og skipulagningu. Þátttakendur verða innan um nemendur og kennara Orku- og tækniskóla Keilis, þar sem þeir fá fyrsta flokks aðstöðu til bóklegs og verklegs náms.


Markmið námsleiðarinnar

  1. Auka þekkingu og færni þátttakenda til að vinna með hugmyndir sínar og gera þær að veruleika;
  2. Mynda tengslanet við viðeigandi aðila; og
  3. Auka sjálfstraust þátttakenda til að koma hugmyndum á framfæri.

Kennslufyrirkomulag og kostnaður

200 kennslutímar (4x4 kennslutímar á viku, þ.m.t. kennsla, kynningar, fyrirlestrar, verklegar æfingar, leiðbeiningar). Miðað er við að námið sé verklegt og að þátttakendur vinni að raunverulegum verkefnum og æfingum. Í verklegum áföngum er efni innifalið. Samtals kostar námsleiðin 250.000 kr fyrir hvern þátttakanda og er lágmarksfjöldi þátttakenda: 10 manns. Einnig er hægt að sækja stök námskeið.

Námsleiðin hefst mánudaginn 25. október og lýkur föstudaginn 10. desember. Í flestum tilfellum er kennt á virkum dögum frá kl. 9:00 - 12:00.


Námsleiðin samanstendur af eftirfarandi námskeiðum

Smelltu á heiti viðkomandi námskeiða fyrir nánari lýsingu, markmiðum, kennslufyrirkomulagi og efnistökum.

  1. Ljósmyndun - myndvinnsla og framsetning (20 tímar) 
    Framsetning hugmyndar eða vöru getur skipt sköpum þegar hún er kynnt fyrir væntanlegum viðskiptavini, samstarfsfélaga eða fjárfesti. Það að ná fram réttu andrúmslofti og stemmingu í kynningarefni á ótvírætt stóran þátt í velgengni hugmynda. Þátttakendum eru kyntir helstu þettir við framsetningu hugmynda, og vali á litum, formum, leturgerð og myndbyggingu. Hver þátttakandi velur sér vöru og býr til kynningu fyrir hana. Notast verður við Adobe Photoshop í myndvinnslu og Adobe Illustrator við tölvuteikningu og samsetningu.

  2. Video - upptökur, úrvinnsla og vefurinn (20 tímar)
    Grunnkennsla í notkun stafrænna upptökuvéla, úrvinnslu og klippingu myndefnis og hljóðsetningu. Þátttakandinn lærir að koma efninu frá sér á helstu samfélagsmiðla, svo sem YouTube, flickr, Facebook og almennar vefsíður. Grunnkennsla í uppbyggingu og gerð vefsíðna. Námskeiðið er einkar hagnýtt bæði fyrir þá sem vilja markaðssetja hugmyndir sínar á vefnum, en einnig fyrir þá sem vilja læra vinnslu stafrænna myndskeiða.

  3. Þrívíddarteikning og hönnun (20 tímar)
    Á námskeiðinu verður kennt að nota þrívíddarteikniforritið Rhinoceros (www.rhino3d.com) við hönnun og teikningu á "vatnsheldum" þrívíddar líkönum. Einnig veða kynntar helstu viðbætur við forritið sem geta nýst við teikningu og einfaldað og stytt hönnunarferlið. Námskeiðið nýtist þeim sem hafa áhuga á þrívíddarvinnslu og þeim sem þurfa að geta komið hugmyndum sínum af skissuformi í þrívítt form og í framleiðslu á tölvustúrðum framleiðsluvélum.

  4. Tæknileg vöruhönnun (30 tímar)
    Þátttakendum er kynnt saga vöruhönnunar og kynnt helstu hugtök tengd hönnun. Farið verður yfir stafræna framleiðslutækni (CNC). Kynntar eru helstu framleiðsluaðferðir, kosti þeirra og galla. Farið verður í eiginleika efna og efnisval.

  5. Rafeindastýringar – Arduino (20 tímar)
    Á þessu námskeiði læra þátttakendur að nota Arduino stýringar til að stjórna rafknúnum tækjum. Arduino stýringarnar eru litlir tölvuheilar sem nota má til þess að stýra mótorum og öðrum rafbúnað. Stýringarnar eru afar meðfærilegar, öflugar og ódýrar. Arduino umhverfið er open source sem þýðir að hverjum sem er er leyfilegt að nota forrit annarra. Þátttakendur smíða búnað og læra að skrifa forrit sem lætur stýringuna stjórna búnaðinum, þátttakendur læra einnig að afla sér upplýsinga sjálfir í gegn um internetið og læra þannig að byggja á vinnu annarra. Við smíðina fá þátttakendur einnig aðstoð við smíði og útfærslur á almennum rafeindarásum.

  6. Verkefnastjórnun – Hugmynd, áætlun, framkvæmd (10 tímar)
    Helstu hugtök verkefnastjórnunar kynnt og reynt á virkni þeirra í útfærslu ólíkra hugmynda. Gert er ráð fyrir að þátttakendur öðlist smám saman þjálfun í gerð heildstæðra tíma-, verk- og kostnaðaráætlana og læri að beita verkefnastjórnun sem heilsteyptri fræðigrein í þágu hvers konar skapandi ferla. Í námskeiðinu er lögð áhersla á að kenna helstu hugtök og grunnatriði í verkefnastjórnun og gefa þátttakendum góða yfirsýn yfir verkefnastjórnun sem heilsteypta fræðigrein.

  7. Fjármálalæsi (10 tímar)
    Fjármálalæsi er getan til að lesa, greina, stjórna og fjalla um fjárhagslega þætti sem hafa áhrif á efnahagslega velferð einstaklinga. Það felur í sér getuna til að greina valkosti í fjármálum, fjalla um peninga án vandkvæða, gera áætlanir til framtíðar og bregðast skynsamlega við breyttum forsendum ákvarðana í fjármálum, þar með talið í efnahagsumhverfinu. Fjármálalæsi byggist á þekkingu, viðhorfum og hegðun.

  8. Óhefðbundin markaðssetning (10 tímar)
    Frumkvöðlar hafa oft ekki úr miklum fjármunum að spila til að koma sér á framfæri. Í þessu námskeiði er farið yfir þá miðla sem standa frumkvöðlum tilboða og þeim gerð góð skil. Einnig er farið almennt yfir helstu þætti hefðbundinnar og óhefðbundinnar markaðssetningar, t.a.m. með atburðastjórnun, notkun samfélagsmiðla, guerilla marketing (gerð fréttatilkynninga, samkeppnir, getraunir, o.fl.)

  9. Lögfræði - Hugverk, einkaleyfi, höfundaréttur (10 tímar)
    Í þessu námskeiði er farið í helstu lagalegu atriði tengd stofnun og rekstri fyrirtækja og skattalegt umhverfi þeirra, auk þess sem kennt er hvernig fyrirtækjastjórnendur geta leitað sér upplýsinga og nýtt sér þjónustu lögfræðinga til að ná árangri.

  10. Verkefni (50 tímar)
    Nemandi vinnur að hugmynd sinni undir leiðsögn. Yfirlit yfir búnað og grunn leiðsögn í notkun tækja, t.d. rennibekk, fræsivél, suðu, lóðningu og handverkfæri, ásamt notkun tækja í efnisvinnslu, eins og plastvinnslu, plexigler, málm, o.s.frv. Farið yfir eiginleika helstu mælitækja og þátttakendur fá þjálfun í notkun þeirra. 

Nánari upplýsingar og skráning

Nánari upplýsingar veitir:
Arnbjörn Ólafsson, deildarstjóri Orku- og tækniskóla Keilis
Sími: 578 4000

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Á næstunni

empty
empty1

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf