Keilir er alhliða menntafyrirtæki í eigu háskóla, fyrirtækja og almannasamtaka

Fyrsta útskrift Keilis 2010 24 ÍAK einkaþjálfarar og 3 frumkvöðlar útskrifuðust frá Keili 26. febrúar síðastliðinn.

Fyrsta útskrift Keilis 2010

24 ÍAK einkaþjálfarar og 3 frumkvöðlar útskrifuðust frá Keili 26. febrúar síðastliðinn. Ræður fluttu Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis, Gunnhildur Vilbergsdóttir, forstöðukona Heilsuskóla Keilis og Einar Gunnar Karlsson sem talaði fyrir hönd brautskráðra. Tónlistarkonurnar Konfekt sungu við athöfnina.

Veitt voru verðlaun fyrir góðan námsárangur í báðum námsbrautunum. Hæstur í frumkvöðlanámi var Haukur Nikulásson með einkunnina 8,65. Hæstar í ÍAK einkaþjálfun voru Anna Sæunn Ólafsdóttir og Borghildur Kristjánsdóttir með einkunnina 9,44.

Félag ÍAK einkaþjálfara var formlega stofnað á athöfninni og heimasíða félagsins opnuð. Í forsvari fyrir félagið er Kristján Ómar Björnsson, ÍAK einkaþjálfari og mun félagið fyrst og fremst vera hagsmunafélag fyrir ÍAK einkaþjálfara en Keilir hefur nú útskrifað 110 ÍAK einkaþjálfara.

    


Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 
empty
empty1

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf