Flýtilyklar
Keilir - Miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs
Keilir er alhliða menntafyrirtæki í eigu háskóla, fyrirtækja og almannasamtaka og byggist upp á fjórum mismunandi skólum: Háskólabrú, Heilsuskóla, Orku- og tækniskóla og Flugakademíu.
Um Keili - Miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs
Keilir var stofnaður vorið 2007. Skólinn hefur aðsetur á fyrrum varnarsvæði bandaríska hersins í Reykjanesbæ – sem nú kallast Ásbrú – og starfar sem stendur í fjórum skólum. Hver þeirra hefur sínar áherslur í samræmi við markmið Keilis að byggja á mikilvægi alþjóðaflugvallar og umhverfisvænum auðlindum en jafnframt að nýta þá þekkingu sem er til staðar í nærumhverfinu. Keilir er hlutafélag. Meðal eigenda eru Háskóli Íslands, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, rannsóknarstofnanir, orku- og fjármálafyrirtæki, sveitarfélög, almenningssamtök, flugfélag og verkalýðsfélög.
Met aðsókn er í nám hjá Keili árið 2011, en í þau fjögur ár sem Keilir hefur starfað hafa yfir 900 nemendur hlotið prófskírteini frá skólanum. Keilir starfrækir bæði námsbrautir á háskólastigi og framhaldsskólastigi. Skólanum er ætlað að fylla í eyður í skólakerfinu og vera í nánum tengslum við atvinnulífið – ekki síst þau fyrirtæki sem hasla sér völl á Ásbrú.

Háskóladagurinn 2012
Á Háskóladeginum verða kynntar yfir 500 námsleiðir í öllum háskólum landsins. Keilir verður með kynningarbás í
anddyri Háskólabíó, þar sem hægt verður hægt að kynnast BSc námi í tæknifræði, flugnámi og
einkaþjálfun. Hægt verður að prófa flughermi Flugakademíu Keilis, nemendur úr tæknifræðinámi Keilis segja frá
lokaverkefnum sínum, kynntar verða námsmannaíbúðir á Ásbrú, ÍAK einkaþjálfarar verða með þolmælingar
og fleira. [Nánari upplýsingar hér]
Fréttir
Bókagjöf
01.02 2012
Bókasafni Keilis barst ánægjuleg bókagjöf á dögunum. Einar Gunnar Einarsson einkaflugmaður í New Jersey í Bandaríkjunum sendi
Flugakademíu Keilis fullan kassa af flugtengdu efni sem nýtist vel til kennslu í hinum ýmsu fögum innan Flugakademíunnar.
Lesa meira
Háskóladagurinn 2012
18.02 2012
Allir háskólar landsins kynna námsframboð sitt á árlegum Háskóladegi, sem verður haldinn, 18. febrúar
næstkomandi kl. 12 - 16. Gestir geta kynnt sér nám, starfsemi og þjónustu Keilis í Háskólabíó.
Lesa meira
Heimsókn til AGH tækniháskólans í Kraká
26.01 2012
Fulltrúar Keilis fór á dögunum í heimsókn til AGH tækniháskólans í Kraká í Póllandi. Heimsóknin
var farin að tilstuðlan og í boði rektors og aðstoðarrektora AGH, til að fylgja eftir heimsókn þeirra til Keilis síðastliðið haust.
Ljóst er að það er gagnkvæmur áhugi beggja skóla á nánu samstarfi í framtíðinni.
Lesa meira
Opið fyrir umsóknir í tæknifræði
26.01 2012
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um háskólanám í tæknifræði (BSc) á haustönn 2012. Námið er til þriggja
ára og er boðið upp á sérhæfingu í mekatróník og umhverfis- og orkutæknifræði. Smellið hér fyrir nánari upplýsingar.
Lesa meira
Á næstunni
18.02.2012
Keilir á samfélagsmiðlum
Á Ásbrú hefur nú myndast öflugt samfélag námsmanna og fjölskyldna þeirra. Lægsta leiguverð á
námsmannaíbúðum er á Ásbrú. Kynningarbæklingur um nemendaíbúðir á Ásbrú [PDF]
Fjöskylduvænt fyrirtæki
Árið 2010 hlaut Keilir viðurkenningu frá Reykjanesbæ fyrir fjölskylduvæna stefnu. Hægt er að skoða
starfsmannastefnu Keilis hér.





















