Orku- og umhverfistæknifræði og mekatróník tæknifræði í Orku- og tækniskóla Keilis

Til að hefja nám beint við Orku- og tækniskólann skal umsækjandi hafa lokið stúdentsprófi. Sambærilegt stúdentsprófi teljast:  4. stigs próf frá

Umsókn um nám

Til að hefja nám beint við Orku- og tækniskólann skal umsækjandi hafa lokið stúdentsprófi. Sambærilegt stúdentsprófi teljast: 

  • 4. stigs próf frá vélstjórnarbraut Tækniskólans (áður Vélskóli Íslands)
  • Próf frá frumgreinasviði Háskólans í Reykjavík (áður Tækniháskóli Íslands/Tækniskóli Íslands) 
  • Lokapróf frá Verk- og raunvísindadeild Háskólabrúar Keilis 
Kennslan í tæknifræði miðast við að nemendur hafi tekið að minnsta kosti 24 einingar í stærðfræði og 30 einingar í náttúrufræðigreinum (þar af a.m.k 6 einingar í eðlisfræði) í framhaldsskóla. Umsækjendur sem ekki fullnægja þessum viðmiðunum verður boðið upp á meðal annars stærðfræðikennslu áður en kennsla hefst í ágúst. 

Í þeim tilfellum þar sem nemendur hafa ekki lokið stúdentsprófi, bjóðum við nemendum að taka þá áfanga sem vantar uppá í Háskólabrú samhliða háskólanáminu í tæknifræði. Við bjóðum upp á einstaklingsmiðaðar lausnir og getum í flestum tilvikum metum námið þitt og brúum bilið yfir í háskólanám í tæknifræði. Þetta getur þú gert meðal annars með því að sækja þá áfanga sem vantar uppá samhliða í Háskólabrú eða tekið undirbúningsnámskeið í fjarnámi við Háskólabrú Keilis áður en þú hefur tæknifræðinámið. Við mælum með því að þú bókir viðtal hjá námsráðgjafa Keilis og farir yfir málin.


Fylgiskjöl með umsókn 

Nemendur með stúdentspróf 
  • Afrit af stúdentsskírteini 
Nemendur sem óska eftir því að vera metnir inn í nám 
  • Afrit af staðfestum námsferli frá menntastofnunum 
  • Starfsferill 
  • Sveinsbréf eða meistarabréf ef við á 
  • Meðmæli mega einnig fylgja með 

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf