Orku- og umhverfistæknifræði, mekatróník tæknifræði og frumkvöðlafræði - Orku- og tækniskóli Keilis

Svansmerkið er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna sem byggist á óháðri vottun og viðmiðunum sem taka tillit til alls lífsferils vöru og þjónustu.

Orkufyrirtæki og svansmerkið

Svansmerkið er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna sem byggist á óháðri vottun og viðmiðunum sem taka tillit til alls lífsferils vöru og þjónustu. Magma á Íslandi býður eins árs styrk til þess að gera úttekt á norrænum umhverfisstöðlum fyrir orkuframleiðslu og skilgreina viðmið Svansins fyrir jarðvarmafyrirtæki. Niðurstaða verkefnisins verður skýrsla þar sem gerð er grein fyrir niðurstöðum úttektarinnar og skilgreindum viðmiðum.


Verkefnið er styrkt af Magma á Íslandi

Verkefnið verður unnið í samstarfi við tengiliði hjá Magma á Íslandi og Orku- og tækniskóla Keilis, sem einnig veita nánari upplýsingar um innihald verkefnisins og nauðsynleg gögn.

Tengiliður hjá Orku- og tækniskóla Keilis er Rúnar Unnþórsson, forstöðumaður: runar@keilir.net
Tengiliður hjá Magma á Íslandi er Kristín Matthíasdóttir, efnaverkfræðingur: kmatthiasdottir@magmaenergycorp.com


Styrkupphæð

Styrkurinn er til eins árs og að upphæð 250.000 kr. Miðað er við að jafnaði eyði nemandi um 16 tíma vinnu á mánuði í verkefnið. Í lok hvers styrkárs – á afmæli Keilis – halda styrkþegar kynningar á niðurstöðum verkefnanna, auk þess sem ætlast er til að styrkþegar haldi reglulegar kynningar á stöðu og framvindu verkefna.


Umsókn 

Með umsókn þarf að fylgja upplýsingar um starfsferil, námsferil og rökstutt bréf þar sem er aðkoma nemenda að verkefninu er lýst í grófum dráttum.

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf