Flýtilyklar
Færslubúnaður fyrir litlar flugvélar
Litlar flugvélar eins og Keilir rekur eru sumar hátt í 2 tonn og þarf því flugmaður að fá aðstoð við að
ýta vél út úr og inn í flugskýli. Verkefnið gengur út á að hanna búnað sem gerir einum manni mögulegt að færa
til litlar flugvélar. Niðurstaða verkefnisins verður hönnunarskýrsla, teikningar og frumgerð að færslubúnaði sem hægt verður að
nota til að færa flugvélar Keilis. Búnaðurinn þarf að vera með skiptanlegum tengibúnaði svo hann geti lagað sig að ýmsum
gerðum flugvéla. Enn fremur er kostur ef búnaðurinn er léttur í meðförum og nógu lítill um sig til að stinga aftur í
farangurshólf flugvélar.

Verkefnið er samstarfsverkefni Flugakademíu og Orku- og tækniskóla Keilis
Verkefnið verður unnið í samstarfi við tengiliði hjá Flugakademíu og Orku- og tækniskóla Keilis, sem einnig veita nánari upplýsingar um innihald verkefnisins og
nauðsynleg gögn.
Tengiliður hjá Orku- og tækniskóla Keilis er Rúnar Unnþórsson, forstöðumaður: runar@keilir.net
Tengiliður hjá Flugakademíu Keilis er Kári Kárason, skólastjóri: kari@keilir.net
Styrkurinn er til eins árs og að upphæð 250.000 kr. Miðað er við að jafnaði eyði nemandi um 16 tíma vinnu á mánuði í
verkefnið. Í lok hvers styrkárs – á afmæli Keilis – halda styrkþegar kynningar á niðurstöðum verkefnanna, auk þess sem
ætlast er til að styrkþegar haldi reglulegar kynningar á stöðu og framvindu verkefna.
Umsókn
Með umsókn þarf að fylgja upplýsingar um starfsferil, námsferil og rökstutt bréf þar sem er aðkoma nemenda að verkefninu er
lýst í grófum dráttum.







