Flýtilyklar
Verkefna- og nýsköpunarsjóður Keilis
Verkefna- og nýsköpunarsjóður Keilis er samkeppnissjóður fyrir nemendur Keilis. Sjóðurinn er fjármagnaður af fyrirtækjum. Allir styrkir eru til eins árs og að upphæð 250.000 kr. fyrir hvern nemanda. Miðað er við að jafnaði eyði nemandi um 16 tíma vinnu á mánuði í verkefnið. Í lok hvers styrkárs – á afmæli Keilis – halda nemendur kynningar á niðurstöðum verkefnanna.
Kostir
Í dag er enginn skipulagður farvegur fyrir fyrirtæki til að bjóða nemendum upp á að vinna að verkefnum sem eru; gæluverkefni, enn á
hugmyndastigi og/eða hafa endað ofan í skúffu vegna anna. Með því að senda verkefni inn í sjóðinn og láta fylgja með pening
geta fyrirtækin haldið verkefnunum gangandi og það getur orðið til þess að eitthvað komi út úr þeim.
Við skólann stundar fjöldinn allur af fróðleiksþyrstum og skapandi einstaklingum. Með því að veita nemendum tækifæri á
að vinna verkefni í samstarfi við fyrirtæki er verið að ýta undir áhuga nemenda á náminu sem og ýta undir nýsköpun. Auk
þess þá aukast líkurnar á að einstök verkefni verði að vörum og eða þjónustu. Þá myndast arðbær
störf. Afleidd verkefni, eða Spin-off, fylgja auðvitað með í kjölfarið.
Verkefna- og nýsköpunarsjóður Keilis mun nýtast dugmiklum og efnilegum nemendum sem fá enga fyrirgreiðslu í bönkum við að greiða skóla- og efnisgjöld.
Aðkoma fyrirtækja
Fyrirtæki leggja annað hvort inn ákveðið verkefni eða óska eftir verkefnahugmyndum í ákveðinn flokk. Nemendur Keilis senda inn tillögur að lausn verkefnisins ásamt verkefna- og kostnaðaráætlun. Aukalegur kostnaður við verkefni getur verið útlagður kostnaður sem fellur til við vinnslu verkefnisins. Fulltrúar viðkomandi fyrirtækja og Keilis fara yfir umsóknir og velja bestu umsóknina.
Verkefni 2010 - 2011
- Færslubúnaður
fyrir litlar flugvélar – Keilir
Litlar flugvélar eins og Keilir á eru sumar hátt í 3 tonn og þarf því flugmaður að fá aðstoð við að ýta vél út úr og inn í flugskýlið. Keilir býður býður eins árs styrk til að hanna búnað sem gerir einum manni mögulegt að færa til litlar flugvélar. Niðurstaða verkefnisins verður hönnunarskýrsla, teikningar og frumgerð að færslubúnaði sem hægt verður að nota til að færa flugvélar Keilis. [Nánar]
- Kortlagning lághitasvæða á Reykjanesinu – Kadeco
Verkefnið er að kortleggja lághitasvæði á Suðurnesjum með því að taka saman gögn sem fyrir liggja um svæðið auk viðtala við menn sem búa yfir þekkingu um svæðið. Niðurstaða verkefnisins verður skýrsla þar sem fyrirliggjandi gögn eru sett saman þannig að þau veiti í heildstæða mynd af þeim lághita sem er að finna á Reykjanesinu.
- Orkufyrirtæki og svansmerkið – Magma á
Íslandi
Svansmerkið er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna sem byggist á óháðri vottun og viðmiðunum sem taka tillit til alls lífsferils vöru og þjónustu. Magma á Íslandi býður eins árs styrk til þess að gera úttekt á því hvaða skilyrði jarðvarmafyrirtæki þurfa að uppfylla til þess að fá leyfi til þess að nota Svansmerkið. Niðurstaða verkefnisins verður skýrsla þar sem gert er grein fyrir öllum skuldbindingum, kröfum og kvöðum sem jarðvarmafyrirtæki þurfa uppfylla til að fá Svanvottun. [Nánar]
- Þróun og smíði þjálfunar og greiningar tækis fyrir fólk með hálsvandamál
Um er að ræða aðra frumgerð á tæki fyrir fólk með hálsvandamál. Nemendur þurfa að geta smíðað úr málmi eða léttmálmi (vélsmíði) og geta unnið að samsetningu og stýringu á rafeindabúnaði (rafeindavirkjun). Nánari útlistun á verkefninu veitir Einar Einarsson í síma 8407806 eða á tölvupósti: einar@keilir.net.
- Mekatróník verkefni - Marel
Nánari útlistun á verkefninu verður skilgreind síðar.
- Aflmælingar og úrvinnsla - HBT
Nánari útlistun á verkefninu verður skilgreind síðar.
- Önnur verkefni
Tilkynnt verður um önnur verkefni fljótlega.
Upplýsingar
Nánari lýsingar á verkefnunum verða gefnar þegar opnað verður fyrir umsóknir. Fyrirtæki sem hafa áhuga á að leggja inn ákveðið verkefni í sjóðinn eða óska eftir verkefnahugmyndum í ákveðinn flokk eru beðin um að hafa samband við Keili.Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Verkefna- og nýsköpunarsjóð Keilis. Umsóknum og stuðningsgöngum skal skilað inn á
netfangið: kit@keilir.net eða á skrifstofu Orku- og tækniskóla Keilis.
Nánari upplýsingar um sjóðinn og verkefni veitir:
Dr. Rúnar Unnþórsson
Forstöðumaður Orku- og tækniskóla Keilis
runar@keilir.net







