Orku- og umhverfistæknifræði og mekatróník tæknifræði í Orku- og tækniskóla Keilis

Próftökuréttur og verkefnaeinkunnir Til þess að nemandi hafi próftökurétt þá þarf hann að hafa náð 6 í meðaleinkunn úr verkefnahluta fagsins. Ef nemandi

Upplýsingar um námsmat og próf

Próftökuréttur og verkefnaeinkunnir

Til þess að nemandi hafi próftökurétt þá þarf hann að hafa náð 6 í meðaleinkunn úr verkefnahluta fagsins. Ef nemandi nær ekki tilskyldri lágmarkseinkunn þá telst hann fallinn á verkefnaeinkunn og einnig í faginu.

Fyrir ákveðin verkefni í námskeiðinu er gefin verkefnaeinkunn sem er vegið meðaltal verkefnanna. Kennari gefur upp í upphafi námskeiðs hvernig fyrirkomulag verkefnaeinkunna er. 


Lokaeinkunn 

Lokaeinkunnir í námskeiðum geta verið byggðar upp þrjá vegu og kennari verður að gefa upp hvaða fyrirkomulag er stuðst við í byrjun námskeiðs. Uppbygging lokaeinkunna getur verið eftirfarandi: 

  • 100% Verkefnaeinkunn – t.d. fyrir verkefnanámskeið 
  • 30% Verkefnaeinkunn + 70% lokaprófseinkunn – t.d fyrir almenn námskeið 
  • 100% Lokaprófseinkunn – t.d. fyrir stutt námskeið
Til að ljúka námskeiði verður nemandi að ná lágmarkseinkunn í bæði verkefnahluta og/eða lokaprófi.


Lokaprófseinkunn 

Lokapróf eru haldin í lok hvers námskeiðs. Ekki er gert ráð fyrir sérstöku upplestrarfríi. Lokaprófin eru ýmist skrifleg, munnleg eða verkleg. Lengd prófa fer eftir efni og aðstæðum hverju sinni og er það kennari sem tekur ákvörðun um tímalengd prófs. Nemendur verða að ná lágmarkseinkunninni 5 til að ná lokaprófi. Bæði lokaeinkunn og prófseinkunn verða að ná lágmarki.


Skrifleg lokapróf 

Almennt gildir að skrifleg próf eru 3 klukkutímar. Sama gildir um munnleg próf og verkleg, það er kennarans að ákveða lengd prófs og með hvaða hætti hann prófar úr námsefninu. Prófafyrirkomulag skal þó liggja fyrir í upphafi námskeiðs. Próf eru almennt haldin á sal, yfirsetufólk er til staðar, og gert er ráð fyrir að hægt sé að ná í kennara og prófstjóra á meðan próftíma stendur. 


Munnleg og verkleg lokapróf 

Kennari skal skipuleggja munnleg próf þannig að prófdómari sé viðstaddur. Kennari skal í upphafi námskeiðs tilgreina hvernig fyrirkomulag munnlega prófsins verður háttað. 


Heima-lokapróf 

Þegar lögð eru fyrir nemendur lokapróf sem heimilt er að leysa heima þá er treyst á að nemendur fylgi siðareglum skólans og taki prófið sjálfir án utanaðkomandi hjálpar og/eða samráðs við samnemendur. 


Reglur um próftöku 

Í upphafi hvers námskeiðs skal kennari tilkynna nemendum um fyrirkomulags lokaprófs, þ.e. hvort þeir heimili notkun tækja, gagna og hug- eða tölvubúnaðar í prófinu. Ef nemandi brýtur reglur um próftöku eða hefur rangt við fær hann einkunnina 0 og skal mögulega beittur viðurlögum. 

Ef nemandi mætir ekki í próf eða gengur út úr prófi fær hann einkunnina 0 og þarf að fara í upptökupróf til að ljúka námskeiðinu. 

  • Öll samskipti við aðra en starfsmenn skólans eru bönnuð á meðan prófi stendur
  • Slökkt skal vera á GSM símum og þeir geymdir hjá yfirsetufólki á meðan prófi stendur
  • Neysla matvæla er leyfileg á meðan á próftíma stendur en skal ekki trufla aðra nemendur
  • Starfsmönnum skólans er heimilt að fjarlægja matvælin ef öðrum nemendum stendur truflun af þeim
  • Óheimilt er að yfirgefa prófstofu fyrstu klukkustund prófs
  • Öllum frágangi á prófúrlausn skal vera lokið innan próftímans
  • Ef nemandi lýkur prófi áður en próftími er búinn skal nemandi láta yfirsetumann vita, skila úrlausn, skilja allt dót eftir á borði og læðast út
  • Ekki er leyfilegt að yfirgefa prófstofu síðasta hálftímann af próftíma
  • Nemendur skulu yfirgefa prófstað strax að lokinni próftöku

Moodle (kennslu- samskiptaforrit) 

Leitast er við að hafa öll námsgögn og samskipti milli kennara og nemenda í kennslu- og samskiptaforritinu Moodle. Mikilvægt er að nemendur fari reglulega inn á Moodle til að fylgjast með hverju námskeiði fyrir sig. Brýnt er að nemendur fylgist með tölvupósti daglega, allar upplýsingar frá skólanum og milli nemenda eru sendar í tölvupósti. 


Prófsýning 

Prófsýning verður haldin að viðstöddum kennurum, þar sem nemendur eiga kost á að skoða úrlausn sína í viðurvist kennara. Dagsetning á prófsýningu verður tilkynnt nemendum tímalega. 


Sjúkrapróf 

Ef nemandi forfallast á prófi þarf hann að tilkynna það á skrifstofu skólans fyrir próftíma og skila vottorði innan þriggja daga frá dagsetningu prófs til skrifstofu skólans. Ef nemandi gerir bæði öðlast hann rétt til að taka sjúkrapróf – annars fær hann 0 fyrir prófið og verður að þreyta upptökupróf. 


Upptökupróf 

Nemandi sem ekki nær lágmarkseinkunninni 5 á lokaprófi á rétt á að fara í upptökupróf. Fær nemandi þá hæst einkunnina 5 fyrir prófið. Nemandi sem nær lokaprófi á ekki kost á að taka upptökupróf. 


Kæruréttur nemenda 

Komi upp ágreiningur um námsmat á prófi á nemandi kærurétt varðandi námsmatið með ákveðnum skilyrðum þó og á þá rétt á að fá prófdæmingu óháðs prófdómara sem sker úr um ágreining um námsmat.   Prófsýning er staður og stund fyrir afgreiðslu slíkra mála. Þá getur nemandi fengið að skoða prófúrlausn og einkunn og farið yfir málin ásamt kennara í viðkomandi fagi. Ef nemandi hefur hug á að kæra námsmat á prófi má kennari ekki afhenda honum prófúrlausnina, en nemandinn á rétt á að fá ljósrit af prófúrlausn sinni, því prófúrlausn skal vera stöðugt í vörslu kennara eða annarra starfsmanna skólans uns prófdómari tekur við henni.

Kæra nemanda skal vera skrifleg með rökstuðningi um ágreiningsefni og berast kennslustjóra innan 48 klst. frá því að nemanda var birt einkunn og/eða hann átti þess kost að skoða prófúrlausn á prófsýningu.

  • Sé veitt einkunn ekki undir 5, skal þessi rökstuðningur fela í sér alvarlegar aðfinnslur eða ásakanir.
  • Prófdæming snertir einungis þau atriði sem nemandi hefur rökstutt skriflega sem ágreiningsefni.
Kennari skal eiga þess kost að skila sjálfstæðri skriflegri greinargerð um forsendur mats á kærðri úrlausn sem ásamt kæru nemanda gengur til prófdómara. Þá skal hann og skila kennslustjóra í ljósriti a.m.k. 4 úrlausnum annarra nemenda sem prófdómari fái til samanburðar.

Ef kennari telur eftir ítrekaðar athugasemdir nemenda að annmarkar kunni að vera á prófi, ellegar ef kennari hefur þurft að sitja undir ásökunum um slíkt án þess að telja að þær eigi við rök að styðjast hefur hann þann kost að láta skjóta prófinu í dóm óháð prófdómara. Það gerir hann með því að fara fram á slíkt við kennslustjóra sem tekur að sér  framkvæmd málsins.

Þeir sem hafa ekki gert upp skólagjöld sín fá ekki afhentar prófaúrlausnir né einkunnir fyrr en greiðsla hefur borist. 

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf