Orku- og umhverfistæknifræði og mekatróník tæknifræði í Orku- og tækniskóla Keilis

ÍAK einkaþjálfun byggir á þjálfunarhugmyndarfræði sem er einstök á Íslandi. Þekkt er að þjálfarar noti eitt æfingakerfi fyrir alla skjólstæðinga sína en í

Kynningarefni

ÍAK einkaþjálfun byggir á þjálfunarhugmyndarfræði sem er einstök á Íslandi. Þekkt er að þjálfarar noti eitt æfingakerfi fyrir alla skjólstæðinga sína en í ÍAK einkaþjálfaranámi læra nemendur að greina stoðkerfi einstaklinga út frá líkamsstöðu og hreyfingu. Í kjölfarið á niðurstöðum greininganna læra nemendur að skrifa einstaklingsmiðað æfingakerfi í styrktar- og liðleikaþjálfun með það að markmiði að hámarka árangur og lágmarka meiðsl. 


ÍAK einkaþjálfun 

ÍAK einkaþjálfaranámið er ítarlegasta einkaþjálfaranámið sem er í boði á Íslandi og hefur einkunnarorðin fagmennsku og þekkingu að leiðarljósi. Námið miðast við að skila nemendum tilbúnum til starfa við þjálfun og því er mikil áhersla lögð á að tengja fræðina við verklega kennslu og atvinnulífið. 

Námið er lánshæft hjá LÍN og kennt á tveimur önnum. Bóklegur hluti er kenndur í fjarnámi en verkleg kennsla er staðbundin eina helgi í mánuði. Boðið er uppá staðbundnar lotur annars vegar í Íþrótta- akademíu Keilis á Ásbrú og hins vegar á Akureyri. Þannig gefst sem flestum kostur á að stunda ÍAK einkaþjálfaranámið óháð búsetu. 

Námið er umfangsmikið og ítarlegt, t.d. hvað varðar næringarfræði, lífeðlisfræði, íþróttasálfræði, vöðvafræði, þjálffræði, meiðslafræði, uppsetningu og hönnun æfingakerfa, framkvæmd æfinga, þol- og styrktarþjálfun og mælingar. Rík áhersla er lögð á verklega kennslu þar sem námið miðar að því að skila þjálfurum tilbúnum til starfa. 

Að loknu námi munu nemendur útskrifast með 36 einingar á fram- haldsskólastigi og viðurkenningu sem ÍAK einkaþjálfarar.

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf