Flýtilyklar
Kynningarefni
Hefur þú gaman að tæknilausnum?
Langar þig að taka þátt í að móta framtíð Íslands?
Tæknifræðibrautir Háskóla Íslands og Orku- og tækniskóla Keilis
Orku- og tækniskólinn býður upp á nám í Orku- og umhverfistæknifræði (þar sem nemendur læra að hanna og þróa tækni til að beisla og nýta græna og endurnýjanlega orku) og Mekatróník (þar sem nemendur læra að hanna og smíða rafeinda- og tölvu- stýrðan búnað til að bæta gæði daglegs lífs fólks og að auka sparnað og hagkvæmni í rekstri fyrirtækja). Við bjóðum upp á:
- Fyrsta flokks rannsóknaraðstöðu í skapandi umhverfi frumkvöðla og fyrirtækja á Keilissvæðinu.
- Einstakt tækifæri til að vinna við þróunar- og nýsköpunar- verkefni og afla sér ómetanlegrar þekkingar.
- Menntun sem býr nemendur undir að takast skipulega á við krefjandi verkefni atvinnulífsins af sjálfstrausti og færni.
- BS gráðu til tæknifræði auk viðbótarnáms til að sækja um starfsheitið tæknifræðingur.
Rannsóknarsetur í orkufræðum
Verklegar æfingar og rannsóknir nemenda fara fram í rannsóknarsetri í orkufræðum hjá Orku- og tækniskóla Keilis.
Rannsóknarsetrið er fyrsta flokks tilrauna- og rannsóknaraðstaða fyrir kennslu og rannsóknir í orku- og tæknifræðum.
- Efnafræðistofa
Eldsneytistilraunir (vetni og fjölalkóhól)
Efnagreining (hitaveituvatn, eldsneyti, olíur) - Mekatróníkstofa
Mæli- og rafeindabúnaður
Mótorar, tjakkar og iðntölvur - Varma- og straumfræðistofa
Aflmælibúnaður, túrbínur (gufa/vatnsafl)
Fullkominn vélastandur til rannsókna - Efnisfræðistofa
Þreytuprófanir
Tæringaprófanir - Smiðjustofa
Orku- og umhverfistæknifræði
Orku- og umhverfistæknifræðinámið er þverfaglegt nám þar sem veitt er öruggt bakland í beislun og nýtingu jarðvarmaorku. Aðal-
áhersla námsins er á jarðvarmaorku og að nemendur öðlist skilning á þeim tæknilegu atriðum sem tengjast því sem gerist
bæði neðan og ofan yfirborðs jarðar. Beislun annarrar grænnar og endurnýjanlegrar orku verður einnig viðfangsefni námsins. Lögð er
áhersla á að gera núverandi orkugjafa náttúruvænni og styðja við bakið á möguleikum Íslands til umhverfisvænnar
framtíðar.
Námið miðast við að mennta fjölhæft tæknifólk sem er vel í stakk búið til að takast á við tæknilausnir framtíðarinnar og svara þeim spurningum sem munu koma upp við nýtingu á eftirfarandi grænum orkugjöfum:
- Jarðvarmaorku, t.d. borholutækni, orkuvinnslu og dreifingu
- Sjávarorku, t.d. sjávarföllum, straumum og öldum
- Efnaorku, t.d. efnarafölum og rafgeymum
- Óhefðbundnu eldsneyti, t.d. vetni og fjölalkóhóli
- Vind-, vatns- og sólarorku
Breið undirstaða verður veitt í borholutækni, nýtingu jarðvarma, orkuvinnslu, orkuumbreytingu og dreifingu. Einnig verður kennt hvernig á að hanna vélahluti og velja efni m.t.t. tæringar, slits og þreytu. Auk þess verður nemendum kennd rafmagnsfræði, viðhaldsstjórnun, rekstrarfræði og áhrif umhverfisþátta ásamt fleiri fögum sem eru mikilvæg í starfi orkutæknifræðinga.
Mekatróník
Tæknifræðinámið í mekatróník er þverfaglegt nám sem sameinar vél-, rafeinda- og hugbúnaðartæknifræði.
Mekatróník kemur víða við í nútímatækni. Markmið skólans er að veita nemendum traustan grunn í þessum
fræðum og búa þar með til ómissandi hlekki í sköpun og þróun framtíðartækni.
Undanfarin ár hefur verið vaxandi þörf fyrir tæknimenntað starfs- fólk sem getur bæði hannað og viðhaldið vélbúnaði búnum rafeinda- og hugbúnaðarstýringum. Sem dæmi um slíkan búnað má nefna vélknúin farartæki (bíla, mótorhjól, flugvélar og skip), vélbúnað í framleiðslufyrirtækjum (þjarka, flokkara og vogir), búnað í heilbrigðisgeirann (röntgenvélar, ómunartæki, hjartalínurit, gangráða og svefnmælingar), neytendavörur (myndavélar, þvotta- vélar, geisladiskaspilara og harða diska), gervilimi (hendur, hné og fætur) og margt fleira.
Meðal þess sem kennt verður eru: mælitækni til að ná upplýsingum úr umhverfinu, merkjavinnsla til að vinna úr upplýsingunum og stýritækni til að bregðast við upplýsingunum. Einnig verður kennt hvernig á að hanna vélarhluti, velja efni m.t.t. tæringar, slits og þreytu. Auk þess verður kennd rafmagnsfræði, rafeindafræði og önnur fög sem eru mikilvæg í starfi tæknifræðinga með sérhæfingu í mekatróník.
Starfssvið orku- og umhverfistæknifræðinga og mekatróník tæknifræðinga
Orku- og umhverfistæknifræði:
- Þróun og nýting jarðvarma, borholutækni og orkutengdra jarðvísinda.
- Þróun og nýting vetnis sem orkugjafa.
- Rannsóknir og uppsetning á búnaði fyrir nýtingu grænna orkugjafa á heimsvísu.
Mekatróník:
- Þróun tæknilausna fyrir sjávarútveg og heilbrigðisgeirann.
- Hönnun stýringa og rafeindabúnaðar.
- Mekatróník á þátt í að skapa tækni framtíðarinnar. Hér koma brautryðjendur og búa til sín eigin tækifæri.
Kennslan
Til að ná árangri er lögð áhersla á að taka við áhugasömum nemendum, kenna þeim grunnatriði tæknifræðinnar og
tryggja skilning þeirra á námsefninu. Þetta næst með:
- Verkefnum sem eru byggð á raunverulegum viðfangsefnum.
- Verklegum æfingum til að staðfesta fræðin.
- Verklegum æfingum til að leyfa nemendum að prófa nýjar hugmyndir.
- Krefjandi keppnum á milli nemenda.
- Fyrsta flokks aðstöðu.
Menntun er hugarleikfimi, úrvinnsla upplýsinga og þrautseigja, ekki einföld viðtaka upp- lýsinga. Nemendur verða sjálfir að hafa áhuga á og bera sig eftir þeirri hagnýtu þekkingu og reynslu sem þeim býðst í náminu hjá Orku- og tækniskóla Keilis.
Uppsetning námsins
- 80 ECTS einingar á ári í stað 60.
- Námslán allt árið.
- Sama námsálag.
- Styttri og hnitmiðaðri námskeið.
- Námi lýkur fyrr.
Skemmri námstími þýðir fyrst og fremst að fólk kemst fyrr út í atvinnulífið með menntun og full réttindi.
Sérhæfing er góð en sá breiði bakgrunnur sem fæst með þverfaglegu námi í Orku- og tækniskóla Keilis veitir aðra sýn á lausn verkefna og gerir útskrifuðum nemendum okkar mögulegt að vinna sem sérfræðingar á þeim sviðum sem höfða til þeirra eða sem verkefnisstjórar þverfaglegra vinnuhópa.










