Orku- og umhverfistæknifræði og mekatróník tæknifræði í Orku- og tækniskóla Keilis

Hafi nemandi lokið námskeiðum á háskólastigi við viðurkenndan skóla sem eru sambærileg þeim námskeiðum sem eru í boði hjá Orku- og tækniskóla Keilis,

Mat á fyrra námi og námskeiðum

Hafi nemandi lokið námskeiðum á háskólastigi við viðurkenndan skóla sem eru sambærileg þeim námskeiðum sem eru í boði hjá Orku- og tækniskóla Keilis, gefst þeim kostur á að óska eftir því að fá þessi námskeið metin í námið. 

Sækja þarf um mat á fyrra námi á þar til gerðu umsóknareyðublaði og skila til skrifstofu Keilis, stílað á Orku- og tækniskólann. Til þess að fá námskeið metin þurfa þau, að mati námsmatsnefndar og kennara viðkomandi áfanga, að standast samanburð við sambærileg námskeið hjá Orku- og tækniskólanum.


Gögn sem þurfa að fylgja með umsókn

  • Umsóknareyðublað (prentað út af netinu, útfyllt og undirskrifað af umsækjanda)
  • Staðfest afrit af einkunnum (undirskrifað og/eða stimplað af viðeigandi skóla)
  • Námskeiðslýsingar viðeigandi námskeiða hjá Keili (Orku- og umhverfistæknifræði eða Mekatróník)
  • Námskeiðslýsingar viðeigandi námskeiða hjá viðkomandi skóla

Nánari upplýsingar veitir

Arnbjörn Ólafsson
Deildarstjóri Orku- og tækniskóla Keilis 
Sími: 578 4000

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf