Orku- og umhverfistæknifræði, mekatróník tæknifræði og frumkvöðlafræði - Orku- og tækniskóli Keilis

Kennsla í Orku- og tækniskólanum fer fram í aðalbyggingu Keilis við Grænásbraut 910. Verklegar æfingar og rannsóknir nemenda fara fram í fyrsta flokks

Verkleg aðstaða

Kennsla í Orku- og tækniskólanum fer fram í aðalbyggingu Keilis við Grænásbraut 910. Verklegar æfingar og rannsóknir nemenda fara fram í fyrsta flokks tilrauna- og rannsóknaraðstöðu í byggingu skólans.


Námsaðstaða

Allt bóklegt og verklegt nám fer fram í nýuppgerðum kennslustofum í byggingu Orku- og tækniskóla Keilis við Grænásbraut 910 á Ásbrú. Heiti byggingarinnar (High School) dregur nafn sitt af fyrra hlutverki þess, sem grunn- og framhaldsskóli fyrir fjölskyldur Bandaríkjahers sem var staðsettur á svæðinu fram til ársins 2007. Líkt og með margar aðrar byggingar á svæðinu, hefur nafnið loðað við eftir að Keilir tók yfir húsnæðið.

Á undanförnu ári hefur Orku- og tækniskólinn unnið við að uppfæra kennsluhúsnæðið og færa til nútímalegs horfs. Núna er aðstaðan með því sem best gerist hér á landi (og erlendis). Stefnt er að því að bæta enn frekar við aðstöðu skólans í framtíðinni, enda er nóg um húsakynni á svæðinu.


Verkleg aðstaða

Verkleg aðstaða og rannsóknarstofur eru staðsettar í sömu byggingu og almenn kennsla í Orku- og tækniskólanum. Markmið rannsóknaraðstöðunnar er að halda utan um þjónustu, samskipti og þekkingarmiðlun, ásamt því að stuðla að gagnvirkum samskiptum og verkefnum milli aðila í orkurannsóknum, atvinnulífi og menntun, þ.m.t. Orku- og tækniskóla Keilis og Háskóla Íslands.

Auk þess mun verklega aðstaða vera notuð í samstarfsverkefnum milli innlendra og erlendra menntastofnanna og rannóknaraðila, ásamt því að hýsa sprotafyrirtæki á Ásbrú. Nú þegar hafa verið sett upp fimm sérhæfðar rannsóknarstofur í Orku- og tækniskóla Keilis:

  1. Efnafræðistofa
  2. Mekatróníkstofa
  3. Varma- og straumfræðistofa
  4. Efnisfræðistofa
  5. Smiðjustofa

Framsetning efnis

Póstlisti


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf