Flýtilyklar
Um Orku- og tækniskóla Keilis
Orku- og tækniskóli Keilis býður í samstarfi við Háskóla Íslands upp á 2 þverfaglegar námsbrautir í
tæknifræði. Námið er boðið á vegum Háskóla Íslands, þ.e. nemendur verða skráðir við HÍ og munu
útskrifast þaðan. Námsbrautirnar eru: orkutæknifræði og mekatróník (e. mechatronics).
Færni og sjálfsöryggi útskrifaðra nemenda er mikilvæg. Til þess að byggja upp færni, sjálfsöryggi og dýpri skilning
er nauðsynlegt að hafa stóran hluta námsins verklegan. Áhersla er því lögð á að hinn bóklegi þáttur námsins
sé sannreyndur með verklegum æfingum og nemendur fái tækifæri til þess að prófa fræðin á sjálfstæðan,
ítarlegan og vísindalegan hátt, kennslan verði á forsendum tæknigreina. Verklegu æfingarnar munu verða byggðar þannig upp þannig að
nemendur öðlast æfingu í verkefnum sem endurspegla þau verkefni sem þeir eiga eftir að fást við þegar út á vinnumarkaðinn
verður komið. Þannig helst námsefnið lifandi í hugum fólks og þar kemur sterkt inn að námsárinu er skipt í fjórar
annir.
Persónuleg kennsla vegur þungt í því að ná fram markmiði okkar um að útskrifa nemendur með framúrskarandi þekkingu og
færni á sínu kjörsviði. Til viðbótar verða ráðnir kennarar sem hafa brennandi áhuga á viðfangsefninu, því
áhugi þeirra smitast yfir á nemendur. Það er þekking og færni útskrifaðra nemenda sem á endanum segir til um gæði námsins.
Mikilvægt er að nemendur geti spjarað sig út í hinum stóra heimi eftir nám. Lögð er áhersla á að námi loknu geti nemendur
okkar tekist á við og stjórnað verkefnum allt frá hugmynd gegnum hönnunarferli til framleiðslu og markaðssetningar.
Þekking og reynsla nemenda úr atvinnulífinu eykur á fjölbreytileika námsins og verður til þess að þeir læra hver af
öðrum og jafnvel kennarar af þeim. Því má ekki gleyma að markmiðum skólans verður ekki náð nema að til okkar komi hæfir,
skapandi nemendur sem eru tilbúnir að leggja á sig krefjandi háskólanám. Enginn afsláttur verður gefinn, námið verður krefjandi!
En námið verður líka skemmtilegt! Strax í upphafi náms verður nýnemum þjappað saman og liðsheild mynduð með sérstakri
hópeflisviku. Lögð verður áhersla á að nemendur nái og vinni vel saman. Þetta er mikilvægt þar sem hópurinn á eftir að
starfa náið saman út námið.
Fyrirmyndaraðstaða til kennslu, tilrauna og rannsókna verður útbúin í húsnæði Orku- og tækniskólans. Þar
verða útbúnar fjórar fullkomnar rannsókna- og tilraunastofur, ein fyrir hvora námsbraut ásamt tilraunastofum í efna- og efnisfræði.
Þessar tilraunastofur verða einnig nýttar af Háskóla Íslands til rannsókna og kennslu. Sprotafyrirtæki og fleiri aðilar á
svæðinu munu einnig geta nýtt sér aðstöðuna og nemendur okkar munu vinna áhugaverð og spennandi verkefni í samvinnu við þau.
Að grunnámi loknu, þ.e. eftir BS nám, hafa nemendur okkar nokkra spennandi valmöguleika. Nemendur geta sótt um lögverndaða starfsheitið
tæknifræðingur til iðnaðarráðuneytisins og haldið út á atvinnumarkaðinn sem fullgildir
tæknifræðingar. Nemendur geta einnig farið erlendis til að ljúka mastersgráðu í tæknifræði. Einnig geta
nemendur okkar bætt við sig ákveðnum raungreina- og verkfræðifögum til að fá samþykkt inn í mastersnám í verkfræði
hjá Háskóla Íslands. Ekki hefur verið gengið frá því hvaða námskeið það verða.
Tæknifræðinámið sem Orku- og tækniskólinn býður upp á er, eins og ég sagði í upphafi, þróað í
samvinnu við Háskóla Íslands. Háskóli Íslands ber ábyrgð á náminu en Keilir sér um framkvæmdina. Þetta
þýðir að nemendur Orku- og tækniskólans verða í nám við HÍ og útskrifast þaðan. Sú ákvörðun
Háskóla Íslands að fara af stað með nám í tæknifræði er í raun stærra skref en margir átta sig á í
fyrstu. Með þessari ákvörðun er Háskólinn að viðurkenna mikilvægi tæknifræðinnar og býst ég fastlega við að
margir tæknifræðingar fagni þessum tímamótum.
Að lokum vil ég hvetja alla þá sem bera hag tæknifræðinnar, Háskólans og Keilis fyrir brjósti að hafa samband ef þeir
búa yfir upplýsingum sem geta orðið til þess að tæknifræðinámið hjá okkur verði enn betra.
Orku- og tækniskóli Keilis
Grænásbraut 910
Ásbrú 235
Reykjanesbær







